Erlent

Minnst 60 látnir í sprengjuárásum í Damaskus

Samúel Karl Ólason skrifar
Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni.
Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Vísir/AFP
Minnst 60 eru látnir og tugir særðir eftir þrjár sprengjuárásir í Damaskus í Sýrlandi. Bíll var sprengdur nærri helgistað í borginni og skömmu seinna sprengdu tveir menn sjálfa sig í loft upp þegar björgunarsveitir voru komnar á vettvang. Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni.

Forsvarsmaður Syrian Observatory for Human Rights, sem rekur umfangsmikið net tengiliða í Sýrlandi, segir árásina hafa beinst að rútu sem notuð var til að flytja vopnaðar sveitir sjíta. Rami Abdurahman gerir ráð fyrir frekari árásum á svæðinu þar sem samtökin Hezbolla halda svæðinu.

Forsvarsmenn ríkisstjórnar Sýrlands og hina fjölmörgu uppreisnar- og vígahópa funda nú í Genf. Þar reyna þeir að stilla til friðar í Sýrlandi en þetta eru fyrstu viðræður þeirra á milli í tvö ár.

Bashar Jaafari, formaður sendinefndar ríkisstjórnarinnar, sagði sprengingarnar vera til marks um tengsl á milli á hryðjuverkahópa og Sádi-Arabíu.

Nánar tiltekið var sprengingin gerð í hverfinu Sayyida Zeinab í suðurhluta Damaskus, en það er vinsælla viðkomustaður pílagríma sjíta frá Íran og Líbanon. Þúsundir sækja hverfið heim á hverju ári. Fyrstu ár borgarastríðsins var hart barist um svæðið en stjórnarherinn og Hezbollah hafa nú haldið svæðinu um nokkurt skeið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×