Erlent

Minnisblöð varpa nýju ljósi á samband Trump og Comey

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Donald Trump og James Comey hafa tekist á fyrir opnum tjöldum síðustu vikur.
Donald Trump og James Comey hafa tekist á fyrir opnum tjöldum síðustu vikur. Vísir/afp
Bandaríkjaforsetinn Donald Trump hafði miklar áhyggjur af dómgreind fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa síns, Michael Flynn, ef marka má minnisblöð James Comey, fyrrverandi forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar FBI.

Fimmtán blaðsíður af minnisblöðum Comey voru opinberaðar nú í nótt og eru þær sagðar varpa nýju ljósi á samskipti hans og forsetans, sem rak Comey í maí í fyrra.

Þeir hafa farið hörðum orðum hvor um annan síðustu vikur eða allt frá því að glefsur úr æviminningum Comey, A Higher Loyalty, fóru að leka í bandaríska fjölmiðla. Trump hefur til að mynda kallað Comey „slímbolta“ og „versta forstjóra FBI frá upphafi“

Eitt minnisblaðanna fjallar um fund sem Comey átti með Trump í Hvíta húsinu á meðan hann gegndi enn embætti forstjóra FBI. Í því kemur fram að Trump hafi farið þess á leit við Comey að hann myndi stöðva rannsókn embættisins á gjörðum þáverandi þjóðaröryggisráðgjafans Flynn, sem grunaður var um óeðlileg tengsl við rússneska áhrifamenn.

Comey ritar að Trump hafi tjáð sér að Flynn, að hans mati, væri með „alvarlega lélega dómgreind.“ Því næst hafi hann kennt Flynn um að hafi trassað það að svara símtali þjóðarleiðtoga, sem hafi ætlað sér að óska Trump til hamingju með embættistökuna í janúar í fyrra.

„Ég hafði ekki sagt neitt á þessum tímapunkti og ekki minnst einu orði á áhuga og samskipti FBI við Flynn,“ skrifar Comey.

Sjá einnig: Comey talaði í fyrirsögnum

Um þetta leyti, í upphafi síðasta árs, var FBI búið að yfirheyra Flynn vegna samskipta hans við sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, Sergey Kislyak. Varnarmálaráðuneytið hafði einnig varað Hvíta húsið að sérfræðingar úr þeirra röðum óttuðust að Flynn væri ginkeyptur fyrir mútum.

Trump rak Flynn þann 13. febrúar í fyrra og var ástæðan sögð vera sú að hann hafi sagt Hvíta húsinu ósatt um samskipti sín við Rússa. Í öðru minnisblaði segir Comey að Trump hafi boðað hann á sinn fund, vísað öðrum embættismönnum út af skrifstofunni og því næst hvatt Comey til að hætta að rannsaka málefni Flynn. Hann væri þrátt fyrir allt „góður gæi.“

Minnisblöðin benda einnig til þess að þáverandi starfsmannastjóri Hvíta hússins, Reince Preibus, hafi spurt Comey hvort að FBI væri að hlera samskipti Flynn.

Frekar má fræðast um minnisblöðin, sem sögð eru styðja það sem fram kemur í æviminningum Comey, á vef Guardian og breska ríkisútvarpsins.


Tengdar fréttir

Comey talaði í fyrirsögnum

James Comey, fyrrverandi forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar, var ekkert að skafa af því í fyrsta sjónvarpsviðtalinu sem birtist eftir að endurminningar hans, A Higher Loyalty, komu út vestanhafs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×