Innlent

Minniháttar meiðsl eftir margar veltur

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Nær ótrúlegt þykir hve vel ökumaðurinn slapp.
Nær ótrúlegt þykir hve vel ökumaðurinn slapp. mynd/facebook-síða lögreglunnar á vesturlandi
Umferðarslys varð í morgun á þjóðveginum skammt frá Stykkishólmi. Ökumaður bifreiðar missti stjórn á henni, hafnaði utan vegar og valt fjölmargar veltur. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vesturlandi.

Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur. Að sögn lögreglunnar slapp maðurinn með minniháttar meiðsl. Sá hlýtur að teljast nokkuð lánsamur enda fararskjóti hans ónýtur og í klessu eftir veltuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×