Innlent

Minniháttar bilun olli 20 tíma seinkun á flugi Wow Air

Birgir Olgeirsson skrifar
Tuttugu tíma seinkun verður á flugi Wow Air frá Keflavíkurflugvelli til San Francisco í Bandaríkjunum vegna minniháttar bilunar. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi Wow Air, segir í samtali við Vísi að „minniháttar bilun“ hafa komið upp í  vélinni í gærkvöldi en nú sé viðgerðum lokið og áætluð brottför frá Keflavíkurflugvelli klukkan 13 í dag.



Brottför vélarinnar var áætluð klukkan 17 í síðdegis í gær en mikil seinkun varð á henni vegna þessarar bilunar og tjáðu farþegar sig um hana á Twitter.

Nú er sem fyrr segir búið að gera við vélina að sögn Wow Air og áætluð brottför frá Keflavíkurflugvelli klukkan 13 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×