Innlent

Minni úrkoma aldrei mælst

„Það hafa mælst 4,8 millimetrar í mánuðinum og á ekki eftir að rigna meira,“ segir Aðalgeir Egilsson veðurathugunarmaður á Mánárbakka á Tjörnesi skammt frá Húsavík.



Þetta er minnsta úrkoma sem mælst hefur á Mánárbakka í júní frá því mælingar hófust árið 1957. Til samanburðar hefur úrkoman í Reykjavík í júní verið 38 millimetrar.



„Það rigndi duglega í lok maí og jarðvegurinn býr að því. Túnin eru vel sprottin þannig að við þurfum bara þurrk í nokkra daga til viðbótar til að klára heyskapinn,“ segir Aðalgeir.



Síðast mældist minni úrkoma á Mánárbakka í mars 1996, 3,2 millimetrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×