Sport

Minni tími til að gera út um framlengingarnar á næsta tímabili í NFL-deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
New England Patriots liðið tryggði sé NFL-titilinn í framlengingu í byrjun febrúar.
New England Patriots liðið tryggði sé NFL-titilinn í framlengingu í byrjun febrúar. Vísir/Getty
Eigendur félaganna 32 í ameríska fótboltanum samþykktu að gera breytingar á leiktíma íþróttarinnar fyrir komandi tímabil sem hefst í haust.

Ákveðið var að stytta framlenginguna úr 15 mínútum niður í 10 mínútur.  Alla leiki þarf að framlengja séu liðin jöfn eftir leikhlutana fjóra sem allir eru fimmtán mínútur. NFL segir frá þessu á heimasíðu sinni.

Aðalástæðan fyrir þessari breytingu er öryggi leikmanna þar sem 70 mínútur af fótbolta þykir vera orðið meira en nóg. Verði staðan enn jöfn við lok framlengingar þá endar leikurinn með jafntefli.

Hefði sama regla verið í gildi á síðasta tímabil þá hefði Tampa Bay Buccaneers liðið komist í úrslitakeppnina en ekki lið Detroit Lions. Tampa Bay hefði þá ekki tapað fyrir Oakland Raiders en Flórídaliðið var bara einu jafntefli frá sæti í úrslitakeppnini.

Þrír aðrir leikir hefðu einnig endað með jafntefli í stað þess að Pittsburgh Steelers vann Cleveland Browns, Miami Dolphins vann Buffalo Bills og Kansas City Chiefs vann Denver Broncos. Öll þessi lið tryggðu sér sigur á síðustu fimm mínútunum í framlengingu.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×