Innlent

Minni skjálftavirkni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá gosinu í morgun.
Frá gosinu í morgun. Vísir/Egill
Skjálftavirkni á norðvesturhluta Vatnajökuls hefur verið mun minni undanfarnar 24 klst eða um helmingur þess sem hún hefur verið undanfarna daga. Frá miðnætti hafa mælst um 300 skjálftar. Á sama tíma í gær, 1 september, greindust 500 skjálftar á mælum. Skjálftarnir síðan á miðnætti voru við gosstöðvarnar, sá stærsti 3 að stærð. Nokkrir minni voru í ösku Bárðarbungu. Þetta er á meðal þess sem kom fram á fundi vísindaráðs Almannavarna sem fram fór í morgun.

Vísir/Egill Aðalsteinsson
GPS-tæki í nágrenni innskotsins sýnir mun minni færslur en fyrir gosið. Það hefur gerst á sama tíma og skjálftavirknin hefur minnkað. Þetta gefur til kynna að kvikuflæðið inn í ganginn og kvikuflæði inn í gosinu eru gróft séð í jafnvæði eins og er.

Engin aska kemur frá gosinu. Hvítur gosmökkur rís um 4,5 km frá gosstöðvunum. Vindáttin stýrir áttinni sem mökkurinn fer. Í gær náði hann um 60 km til norð-norðausturs.

Í samanburði við gærdaginn mælist nú meira rúmmál brennisteinsdíoxíðs  undan vindi frá eldstöðinni. Sandstormur á gossvæðinu kann að hafa blandað örfínum ögnum upp í gosmökkinn, og kann að útskýra ljósbrúna móðu yfir Eigilsstöðum í morgun.

Vísir/Egill Aðalsteinsson
Gossprungan er um 1.5 km á lengd um 4.5 km frá jökulrönd Dyngjujökuls.

Klukkan 14:00 í gær var flatarmál hraunsins um 4.2 km2, klukkan 8:00 í morgun hafði rönd þess teigt sig 1.5 km til aust-suð-austurs.

Eldgosið hledur áfram þó það virðist hafa dregið lítillega úr virkninni frá því sem var í gær. Ekki er hægt að segja til um það á þessari stundu hvert framhaldið verður. Fjórir möguleikar eru taldir líklegastir:

-Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og ekki komi til annars eldgoss.

-Gangurinn nái til yfirborðs og eldgos hefjist á ný norðan Dyngjujökuls, jafnvel á nýrri sprungu. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.

-Gangurinn nái til yfirborðs og eldgos hefjist á ný en verulegur hluti eða öll sprungan verði undir Dyngjujökli. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.

-Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.

Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands: Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.


Tengdar fréttir

Mikill gufustrókur frá Holuhrauni

Skjálfti upp á 4,5 stig varð í Bárðarbungu um klukkan 5 í morgun. Ekkert virðist draga úr hraunflaumnum frá gosstöðvunum.

Flatarmál hraunsins nú rúmir fjórir ferkílómetrar

TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, flaug yfir umbrotasvæðið við norðanverðan Vatnajökul milli klukkan 13:45 og 16:30 í dag. Gossprungan er um 1,5 kílómetri og er samfellt gos á um 600 til 800 metra löngum kafla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×