Skoðun

Minni samkeppni í bankastarfsemi á Íslandi?

Gunnar Alexander Ólafsson skrifar
Undanfarna mánuði hafa birst fréttir um minnkandi samkeppni á bankamarkaði. Ekki er langt síðan Landsbankinn yfirtók Sparisjóð Vestmannaeyja. Þá yfirtöku bar brátt að, þannig að mögulegum öðrum kaupendum gafst ekki nægur tími til að leggja fram tilboð. Styttra er síðan fréttir bárust um að Afl sparisjóður hefði verið sameinaður Arion banka, en sparisjóðurinn hafði verið í söluferli. Nýlega bárust fréttir af því að Landsbankinn hyggst kaupa Sparisjóð Norðlendinga.

Allar þessar fréttir bera með sér að stærri bankar eru að taka yfir minni fjármálastofnanir. Það er ekki gott fyrir samkeppni og neytendur. Færri leikendur á markaði þýðir enn meiri fákeppni og einsleitari markað. Fyrir neytendur skiptir miklu máli að hafa fjölbreytt val. Með þessari þróun er verið að vinna gegn markmiðum samkeppnislaga og minnka val neytenda. Þetta mun án efa leiða til hærra verðs fyrir bankaþjónustu. Að auki óttast ég að þetta muni leiða til verri þjónustu við neytendur, en allir þessir sparisjóðir hafa sinnt bankaþjónustu í fámennari byggðum og verið þessum byggðum traustir bakhjarlar. Ekki er langt síðan Landsbankinn lagði niður útibú vítt og breytt um landið.

Enn verri fréttir bárust um daginn þegar þingmaður Framsóknarflokksins lagðist gegn því á opinberum vettvangi að Íslandsbanki yrði seldur til erlendra aðila. Aðalrök hans voru þau að vont væri að selja erlendum aðilum bankann því þá þarf að greiða þeim arð í erlendum gjaldeyri. Þingmaðurinn horfir fram hjá því að svo virðist sem miklu meira fé fáist fyrir bankann ef hann verður seldur erlendum aðilum en innlendum. Að auki hefur íslenska bankakerfið verið lokað erlendum aðilum síðan Íslandsbanki fyrri var og hét á tímabilinu 1904-1930. Þessi skoðun þingmannsins er ekki íslenskum neytendum í hag sem tapa enn meira á því að hafa lokað bankakerfi. Samkeppni á bankamarkaði með erlendum banka er góð bæði fyrir neytendur og fyrirtækin í landinu.

Það er reyndar með ólíkindum að heyra svona raddir um að loka ákveðnum geira fyrir fjárfestingu erlendra aðila árið 2015 þegar Ísland er aðili að EES-svæðinu sem beinlínis bannar hindranir af þessu tagi. Að auki eru mörg fyrirtæki sem starfa á Íslandi í eigu erlendra aðila, t.d. öll álverin. Að auki má benda á að á hverjum degi eru margir aðilar að reyna að fá erlenda fjárfestingu inn í landið. Málflutningur af þessu tagi hjálpar þeim aðilum ekki.

Að ofan hef ég nefnt þrjú dæmi um ásetning stærri banka að draga úr samkeppni á bankamarkaði á Íslandi. Að auki hef ég nefnt skoðun þingmanns sem er á móti erlendri samkeppni á bankamarkaði. Hvorugt er gott fyrir neytendur. Ég vil hvetja samkeppnis- og fjármálayfirvöld til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma veg fyrir þessar sameiningar.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×