Fótbolti

Minni samkeppni fyrir Alfreð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haris Seferovic í leik með Sviss á HM.
Haris Seferovic í leik með Sviss á HM. Vísir/Getty
Svissneski framherjinn Haris Seferovic er genginn í raðir Eintracht Frankfurt frá spænska liðinu Real Sociedad. Seferovic gerði þriggja ára samning við þýska liðið.

Hinn 22 ára gamli Seferovic skoraði tvö deildarmörk í 24 leikjum fyrir Sociedad á síðustu leiktíð.

Ljóst er að staða Alfreðs Finnbogasonar styrkist við brotthvarf Seferovic, en nú eru, auk íslenska landsliðsmannsins, tveir framherjar eftir í leikmannahóp Sociedad; Mexíkóinn Carlos Vela og Úrúgvæinn Diego Ifrán.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×