Bílar

Minni hagnaður BMW vegna dræmrar sölu í Kína

Finnur Thorlacius skrifar
BMW X6.
BMW X6.
Hagnaður BMW á öðrum ársfjórðungi minnkaði um 3% og er helsta ástæða þess dræm sala bíla í Kína, en margir bílaframleiðendur heims hafa neyðst til að lækka verð bíla sinna í þessum stærsta bílamarkaði heims og dregur það úr hagnaði þeirra.

BMW skilaði engu að síður 370 milljarða hagnaði á fjórðungnum. Mikill kostnaður við þróun nýrra bíla BMW átti einnig hlut í minnkandi hagnaði fyrirtækisins og aukin sala minni bíla BMW sem skila minni hagnaði en sala stærri bíla þess.

BMW spáir samt meiri hagnaði á árinu öllu en í fyrra. Sala bíla BMW hefur aukist um 7,5 á fyrstu tveimur ársfjórðungum þessa árs og er heildarsalan 573.079 bílar.

Hagnaður af sölu hefur hinsvegar lækkað úr 11,7% niður í 8,4% og er það minni hagnaður af sölu en hjá Mercedes Benz nú (10,7%) og Audi (9,9%). Ef að sala bíla í Kína heldur áfram að minnka telur BMW að breyta þurfi hagnaðarspá fyrirtækisins fyrir árið í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×