Innlent

Minnast þjálfara síns með hlýhug

Stefán Ó. Jónsson skrifar
MYND/GUNNAR ÁRMANNSSON
„Stundum á lífsleiðinni hittir maður fólk sem hefur meiri áhrif á mann en aðrir. Yfirleitt fer það saman að maður ber virðingu fyrir viðkomandi og telur sig geta lært af henni eða honum og reynir jafnvel að tileinka sér það sem manneskjan hefur fram að færa. Í mínu tilfelli var Pino Becerra ein af þessum manneskjum.“

Svona hefst pistill Gunnars Ármannssonar sem hann birti á bloggsíðu sinni fyrr í dag.

Pino lést af slysförum í Fljótshlíð um síðastliðna helgi og hefur mikið verið fjallað um dauðsfall hennar og leit manna af samferðakonu hennar sem enn er ófundin.

Gunnar segist ekki hafa þekkt Pino nema í rétt um mánuð en engu að síður hafi það dugað henni til að „hafa slík áhrif á mig að mér finnst kær vinur hafa horfið á braut,“eins og hann kemst að orði.



Hann lýsir því í pistlinum hvernig Pino var ráðin sem þjálfari í hlaupahóp Stjörnunnar í maí síðastliðnum og reifar því næst æfingarnar sem hún lagði fyrir hópinn.

„Æfingarnar hjá Pino voru skemmtilegar. Hún var skemmtileg. Hún var glettin og kunni að gera grín að tilburðum nemenda sinna án þess að gera lítið úr nokkrum. Henni tókst afar vel með leikrænum tilburðum að sýna okkur hvernig við gerðum æfingarnar vitlaust. Það var oft afar spaugilegt og efni í heilu skemmtiatriðin á árshátíðum hlaupahópa. Fyrir okkur Stjörnufólk sem urðum þeirra forréttinda aðnjótandi að sjá hvernig við litum út í augum þjálfarans okkar - hennar Pino - höfum við yndislegar minningar,“ segir Gunnar.

Hann minnist hennar með hlýhug og minnist þess hvernig hún spurði hann frétta af einlægni. „Hún ráðlagði mér. Ég fór eftir því og fann að það skipti máli. Hlýleiki hennar og einlægur áhugi á vellíðan annarra snart mig. Pino skilur eftir sig djúp spor hjá mér og ég veit að hún gerir það einnig hjá öðrum Stjörnuhlaupurum sem æfðu undir hennar leiðsögn,“ segir Gunnar að lokum um leið og hann vottar aðstandendum hennar dýpstu samúð.


Tengdar fréttir

Fundu fótspor eftir berfætta manneskju

Leit stendur enn yfir að konu sem saknað er eftir sumarbústaðaferð í Fljótshlíð. Fótspor eftir berfætta manneskju fannst í morgun um þremur kílómetrum austan við Bleiksárgljúfur.

Fannst látin í Bleiksárgljúfri

Erlend kona fannst látin í Bleiksárgljúfri um 25 kílómetra frá Hvolsvelli í gærkvöldi og leit stendur yfir að íslenskri konu.

Erfið leitarskilyrði í Bleiksárgljúfri

Víðtæk leit stendur nú yfir að íslenskri konu í innanverðri Fljótshlíð í Rangárvallarsýslu, þar sem erlend vinkona hennar fannst látin í gær.

Leggja megin áherslu á sporin

"Megin áhersla leitarinnar í dag eru að elta þau spor sem fundust,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli.

Leit heldur áfram í nótt

Um 170 manns taka þátt í leitinni en björgunarsveitir frá Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu byrjuðu smátt og smátt að tínast upp Fljótshlíðina upp úr hádegi í dag til að taka þátt í henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×