Enski boltinn

Milner vill Henderson frekar en fyrirliðabandið í úrslitaleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
James Milner fær góð ráð frá Jürgen Klopp í gær.
James Milner fær góð ráð frá Jürgen Klopp í gær. Vísir/Getty
James Milner hefur verið fyrirliði Liverpool-liðsins í fjarveru Jordan Henderson og leiddi liðið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar með flottri frammistöðu í 3-0 sigri í seinni leiknum á móti Villarreal á Anfield í gærkvöldi.

Liverpool mætir Sevilla í úrslitaleiknum á St. Jakob-Park í Basel í Sviss en sigur í þeim leik kemur liðinu í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Jordan Henderson hefur ekkert spilað með Liverpool síðan að hann fór meiddur af velli í fyrri leiknum á móti Borussia Dortmund í átta liða úrslitunum.

James Milner óskar þess að Jordan Henderson verði búin að ná sér fyrir úrslitaleikinn sem verður 18. maí og hann mun glaður láta hann fá fyrirliðabandið aftur.

„Það er bara frábært að vera komnir alla leið," sagði James Milner við heimasíðu Liverpool eftir leikinn í gær.

„Vonandi á Hendo möguleika á því að ná úrslitaleiknum. Ef hann verður klár þá mun hann bera fyrirliðabandið í úrslitaleiknum. Við viljum allir sjá hann koma til baka," sagði Milner.

„Ef að hann nær ekki leiknum þá yrði það mikill heiður fyrir mig að vera fyrirliði þessa fótboltafélags í þessum leik," sagði Milner.

Liverpool á að baki fjórtán leiki í Evrópudeildinni á þessu tímabili og það hefur því verið mikið verk að koma liðinu alla leið í úrslitaleikinn.

„Þetta er búin að vera löng leið. Við höfum spilað marga leiki í Evrópu á tímabilinu og ég hugsa til baka þegar við vorum að spila á frosnum völlum í riðlakeppninni," sagði Milner.

„Við höfum slegið út fullt af góðum liðum á leið okkar og nú er framundan leikur á móti öðru góðu liði. Við höfum komið okkur í aðstöðu til að vinna titil. Þetta verður annar úrslitaleikur okkar á leiktíðinni og vonandi tekst okkur að vinna titil," sagði Milner.

„Þetta félag hefur vanist því að vinna titla og það búast allir við góðum árangri hér. Félagið vill vera í úrslitaleikjum og allir í liðinu vilja nú nýta tækifærið og bæta við titilskrána," sagði Milner.


Tengdar fréttir

Liverpool-stuðningsmenn sjá Bill Shankly í Klopp

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er búinn að koma liðinu í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á sínu fyrsta tímabili á Anfield sem þýðir að liðið er aðeins einum sigri frá sæti í Meistaradeildinni 2016-17.

Liverpool upp að hlið Bayern Münhcen

Liverpool tryggði sér í kvöld sæti í tólfta úrslitaleik félagsins í Evrópukeppni frá upphafi en aðeins fjögur evrópsk félög hafa spilað oftar til úrslita í Evrópu.

Klopp: Þvílík frammistaða

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var hátt uppi eftir að leikmenn hans unnu 3-0 sigur á Villarreal á Anfield í kvöld og tryggðu liðinu sæti í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×