Innlent

Milljónir strandaglópa í landi sem er tíund af stærð Íslands

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Sigmundur kannaði aðstæður flóttamanna í Líbanon.
Sigmundur kannaði aðstæður flóttamanna í Líbanon. Mynd/Forsætisráðuneytið.
„Það er óhætt að segja að þetta hefur mikil áhrif á samfélagið hér,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í Reykjavík síðdegis um flóttamannabúðir sem hann heimsótti í Líbanon í gær.

„Þetta er ekki stórt land, það er álíka stórt og Norður-Múlasýsla ef ég man rétt en hér er gríðarlegur fjöldi flóttamanna. Flóttamenn sem hafa verið að koma frá Sýrlandi vegna stríðsins þar en líka mikill fjöldi Palestínskra flóttamanna sem hafa búið hér jafnvel kynslóð eftir kynslóð allt frá árinu 1948.“

Nærri tvær milljónir Sýrlenskra flóttamanna voru í flóttamannabúðum í Líbanon í desember í fyrra. Sigmundur segir þetta skapa mikið álag fyrir stjórnvöld í Líbanon.

„Þeir óttast að svona mikill straumur af flóttafólki gæti raskað jafnvæginu í samfélaginu. Þetta getur líka raskað hlutfallinu á milli þjóðfélagshópa. Kristnir voru hér í meirihluta og auk þess hafa sjíá-múslimar og súnní-múslimar oft átt erfitt í sinni sambúð. Allir þessir hópar vilja gjarnan viðhalda jafnvægi sem að þrátt fyrir allt hefur náðst núna og óttast þess vegna áhrifin af þessum óróa og stríðum í nágrannalöndunum,“ sagði Sigmundur.

Hann átti meðal annars fund með framkvæmdastjóra Rauða krossins í Líbanon auk forsætisráðherra Líbanon.

„Allir voru meðvitaðir um áherslur Íslands í þessum málum og mér fannst þeir taka afdráttarlaust undir að það ætti að nálgast hlutina á heildstæðan hátt eins og við Íslendingar höfum reynt að gera. Það er að segja að styðja við löndin hér í kring, gera mönnum kleift að búa hér í flóttamannabúðunum við sæmilegt öryggi en að geta þá frekar tekið við þeim beint héðan sem eru raunverulegir flóttamenn sem geta ekki snúið aftur,“ sagði hann.

Eftir för sína til Líbanon heldur Sigmundur til London til að funda með þjóðarleiðtogum í Evrópu um ástandið í Sýrlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×