Viðskipti innlent

Milljóna bónusar til starfsmanna Alvogen

ingvar haraldsson skrifar
Róbert Wessman er forstjóri Alvogen.
Róbert Wessman er forstjóri Alvogen.
Ógreiddar bónusgreiðslur til starfsmanna Alvogen Iceland ehf. námu 124,5 milljónum króna um síðustu áramót. Deilist bónusgreiðslurnar jafnt til þeirra 33 starfsmanna sem störfuðu hjá fyrirtækinu í fyrra nema þær tæplega fjórum milljónum á hvern starfsmann. Meðallaun starfsmannanna voru 2,15 milljónir króna á mánuði en laun og launatengd gjöld námu 851 milljón króna á síðasta ári.

Launagreiðslur til starfsmanna félagsins ríflega tvöfölduðust milli ára en þær námu 395 milljónum króna eða 1,1 milljón á þá 30 starfsmenn sem störfuðu hjá félaginu árið 2013. Margir af lykilstarfsmönnum félagsins í Evrópu starfa hjá Alvogen Iceland samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu félagsins.

Íslenska dótturfélagið tapaði 1,36 milljörðum króna á síðasta ári og 802 milljónum króna árið 2013 samkvæmt því sem fram kemur í ársreikningi þess. Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri hjá Alvogen, segir tapið skýrast af því að Alvogen Iceland sé fyrst og fremst stoðdeild fyrir samstæðuna, t.d. í fjármálum, markaðsmálum og gæðamálum. Samstæðan í heild sinni sé öflugt fyrirtæki og hafi skilað fínni afkomu á síðasta ári.

Sjá einnig: Fjárfestar kaupa í Alvogen

Fréttablaðið greindi frá því í sumar að hluthafahópur, undir forystu alþjóðlegu fjárfestingarsjóðanna CVC Capital Partners og Temasek, hefði keypt meirihluta hlutafjár í móðurfélaginu Alvogen. Kaupverðið var ekki gefið upp, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var heildarvirði Alvogen 270 milljarðar króna eftir viðskiptin. Þá hermdu heimildir Fréttablaðsins að tekjur Alvogen hefðu numið 100 milljörðum króna það sem af var ári og rekstrarhagnaður þess hefði numið um 30 milljörðum króna.

Hjá systurfélaginu Alvotech voru 2,33 stöðugildi skráð í ársreikningi að meðaltali á árinu 2014 og námu laun og launatengd gjöld til þeirra 47,6 milljónum króna eða 1,7 milljónum króna á mánuði á hvern starfsmann. Framkvæmdir vegna húsnæðis Alvotech í Vatnsmýrinni eru langt komnar en þar hyggst félagið vinna að þróun líftæknilyfjahliðstæðna sem vonast er til að komi á markað á árunum 2018-2019 þegar einkaleyfi frumlyfjanna renna út. Halldór segir um 100 manns nú starfa hjá Alvogen og Alvotech á Íslandi.


Tengdar fréttir

Alvotech eykur umsvif sín: Tvö líftæknilyf verða að sex

"Með tilkomu okkar lyfja sem koma á markað eftir að einkaleyfi frumlyfja renna út lækka verð umtalsvert og aðgengi sjúklinga að háþróuðum lyfjum eykst," segir Róbert Wessman, stjórnarformaður og stofnandi Alvotech.

Róbert vill kaupa Actavis

Lyfjafyrirtækið Alvogen vill kaupa verksmiðju Actavis í Hafnarfirði. Formlegt tilboð var lagt fram fyrir tveimur vikum og er upphæð tilboðsins á fimmta milljarð króna. Til stendur að loka verksmiðjunni árið 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×