Lífið

Milljón dollara miðinn kominn í sölu

Benedikt Bóas skrifar
Mikið stuð var á meðal gesta á Solstice í fyrra, jafnvel þótt þeir hafi ekki borgað milljón dollara.
Mikið stuð var á meðal gesta á Solstice í fyrra, jafnvel þótt þeir hafi ekki borgað milljón dollara. Vísir/ernir
Tónlistarhátíðin Secret Solstice er að taka á sig mynd, flestir listamenn eru bókaðir og Laugardalurinn er tilbúinn að taka á móti hátíðinni sem verður frá 21.-24 júní. Rokkkóngarnir í Slayer, leðurbarkinn Bonnie Tyler auk gömlu hundanna í Jet Black Joe ásamt fjölmörgum öðrum stórum og smáum munu telja í og slá taktinn í Laugardal. Hægt er að njóta hátíðarinnar ef peningar eru ekki vandamál því milljón dollara miðinn er kominn í sölu.

Fyrir eina milljón dollara, eða rúmlega 100 milljónir er hægt að fá gullna miðann á hátíðina, sem er samkvæmt tilkynningu sagður vera dýrasti tónleikamiði í heimi. Hver vill ekki óþrjótandi kampavín þegar hann lendir á einkaþotunni sem hátíðin útvegar? Hver vill ekki sólahringsaðgang að tveimur bílum og bílstjórum sem og leiðsögumanni um borgina, HM-veislu þar sem hægt er að horfa á hvaða leik sem er með einkakokk fyrir þig og þína gesti sem og endalausar pylsur á Bæjarins beztu.

Ef 100 milljónir eru aðeins of mikið er einnig í boði Pakki guðanna á 14.800 dollara eða um 1,5 milljónir, en þrír slíkir verða seldir, og Óðinn sem er á rétt rúmlega 2.000 dollara sem gerir rétt rúmlega 200 þúsund. Forsvarsmenn hátíðarinnar svöruðu ekki þegar Fréttablaðið leitaði svara.

Meðal þess sem er innifalið í miðanum er einkaferð í Jökulsár- eða Fjallsárlón.FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

Gullni miðinn

  • Fram og til baka á einkaþotu, Gulfstream G300 eða álíka fyrir sex manns.
  • Lúxusgisting alla Secret Solstice vikuna.
  • Komupartí með endalausu kampavíni og íslensku góðgæti útbúnu af einkakokki.
  • Partí með alþjóð- legri stjörnu sem kemur fram á hátíðinni sem og einkatónleikar fyrir þig og þína gesti.
  • Sérstök 66°Norður pop-up búð á hótelherberginu.
  • Einkahárgreiðslumaður og förðunarfræðingur til að passa upp á glamour-inn.
  • Sólarhringsaðgangur að tveimur bílstjórum sem aka viðkomandi og gestum hvert sem er á lúxusbílum.
  • Daglegt slökunarnudd fyrir viðkomandi og gesti.
  • Sérstakt HM-partí þar sem hægt er að horfa á hvaða leik sem er með einkakokki.
  • Einkatúr með þyrlu um jökla og eldfjöll Suðurlands.
  • VIP-miðnætursigling á snekkju fyrir viðkomandi og gesti ásamt listamanni sem kemur fram á hátíðinni.
  • Miðinn tryggir aðgang baksviðs og fram fyrir röð.
  • Endalausar pylsur á Bæjarins beztu.
  • Ferð á Langjökul á vélsleðum.
  • Þekktur ljósmyndari mun mynda þá ferð.
  • Einkaferð í Jökulsár- eða Fjallsárlón.
  • Matur inni í helli sem verður lýstur upp með kertum.

Tengdar fréttir

Guðfaðir fönksins spilar á Secret Solstice

George Clinton ásamt Parliament-Funkadelics, Kollektiv Turmstrasse, Stuðmenn, Gus Gus, Aron Can, Reykjavíkurdætur, Valdimar, Flóni, Birnir og Joey Christ ásamt fleirum bætast við í þriðju tilkynningu Secret Solstice hátíðarinnar.

Metall, rapp og karókívænir smellir í Laugardalnum

Secret Solstice hefur sent frá sér sína aðra tilkynningu fyrir hátíðina í sumar. Hér verður rennt í stórum dráttum yfir það sem tilkynnt hefur verið hingað til á hátíðina og skoðað það helsta sem er að frétta þar á bæ.

Bonnie Tyler kemur fram á Secret Solstice

Söngkonan fræga Bonnie Tyler mun koma frá á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í sumar en hátíðin fer fram í Laugardalnum 21.-24. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×