Viðskipti erlent

Milljarðamæringur losar sig við öll bréfin í Apple

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Milljarðamæringurinn og fjárfestirinn Carl Icahn hefur selt allan hlut sinn í Apple.
Milljarðamæringurinn og fjárfestirinn Carl Icahn hefur selt allan hlut sinn í Apple. Vísir/Getty
Milljarðamæringurinn og fjárfestirinn Carl Icahn hefur selt allan hlut sinn í Apple. Ástæðuna segir hann vera áhyggjur sínar af framtíð fyrirtækisins í Kína. Þetta kemur fram á BBC.

Talið er að Icahn hafi fengið um tvo milljarða dollara með sölunni á bréfum sínum, jafnvirði um 250 milljarða íslenskra króna. Hann átti á einum tímapunkti í fyrra 53 milljón hluti sem voru 6,5 milljarða dollara virði. 

Icahn segist hafa áhyggjur af hægagangi í kínversku efnahagslífi og afskiptum yfirvalda í landinu. Löggjöf í Kína var breytt í mars á þann veg að allt efni sem sýnt er í Kína þarf að vera vistað á netþjónum þar í landi. Í kjölfarið var iBooks og iTunes ekki lengur aðgengilegt í Kína. Apple vonast þó til að opna þjónustuna aftur í Kína.

Verð á bréfum í Apple hefur lækkað undanfarið og er minni sölu á iPhone kennt um.

 


Tengdar fréttir

Hvað er að gerast hjá Apple?

Tekjur drógust saman milli ára hjá Apple í fyrsta sinn í þrettán ár á síðasta ársfjórðungi. Hvað þýðir þetta fyrir fyrirtækið? Hvað er framundan?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×