Viðskipti erlent

Milljarðamæringar heimsins: Bill Gates ríkastur og Björgólfur snýr aftur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bill Gates og Björgólfur Thor Björgólfsson.
Bill Gates og Björgólfur Thor Björgólfsson. Vísir/afp/vilhelm
Björgólfur Thor Björgólfsson snýr aftur á lista Forbes yfir ríkustu menn heimsins eftir fimm ára fjarveru. Hann er eini íslenski milljarðamæringurinn samkvæmt samantekt Forbes. Björgólfur vermir 1415. sæti listans.

Bill Gates er enn eina ferðina í toppsætinu en hann hefur verið ríkasti maður heims sextán af síðustu 21 ári. Auðævi hans jukust um 3,2 milljarða dollara á liðnu ári og nema nú 79,2 milljörðum dollara.

Mexíkóinn Carlos Slim Helu situr í öðru sæti listans og bandaríski fjárfestirinn Warren Buffett hrifsaði þriðja sætið af Spánverjanum Amancio Ortega. Buffett var jafnframt hástökkvari listans í ár, hækkaði um 14,5 milljarða dollara í 72,7 milljarða dollara þökk sé hækkun á hlutabréfum í Berkshire Hathaway.

Mark Zuckerberg er kominn í sextánda sæti listans og er í fyrsta sinn á meðal tuttugu efstu.

Listinn í heild sinni er aðgengilegur á vef Forbes.


Tengdar fréttir

Er enginn útrásarvíkingur, segir Björgólfur Thor

Hluta af óvæginni umræðu og ákveðinni hörku sem mætti Björgólfi Thor hér á landi eftir hrun segir hann skýrast af því að hann hafi verið flokkaður með "útrásarvíkingum“ sem fjárfest hafi í erlendum eignum með ódýru fjármagni frá íslensku bönkunum.

Björgólfur Thor gat ekki hjálpað föður sínum

Í nýrri bók sinni gerir Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir upp við fortíðina og viðskiptalegan viðskilnað sem varð á milli hans og Björgólfs Guðmundssonar föður hans. Björgólfur segir föður sinn hafa dreift kröftum sínum um of fyrir hrun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×