Glamour

Millie Bobby Brown er fyrsta andlit Calvin Klein undir stjórn Raf Simons

Ritstjórn skrifar
Millie Bobby Brown er ung stjarna á hraðri uppleið.
Millie Bobby Brown er ung stjarna á hraðri uppleið. Mynd/Calvin Klein
Tískuáhugafólk hefur beðið í ofvæni eftir fyrstu verkum Raf Simons hjá Calvin Klein. Raf tók við sem yfirhönnuður seinasta sumar. Nú hefur fyrsta auglýsingaherferðin undir hans stjórn verið afhjúpuð en fyrsta línan hans verður ekki frumsýnd fyrr en 10.febrúar á tískuvikunni í New York. 

Aðal stjarna herferðarinnar er Stranger Things stjarnan Millie Bobby Brown. Millie er búin að vera vinsæl í tískuheiminum seinustu mánuði en hún hefur nú þegar setið fyrir á nokkrum forsíðum glanstímarita. 

Í herferðinni situr einnig leikkonan Abbey Lee fyrir sem og fleiri fyrirsætur eins og má sjá hér fyrir neðan.






×