Tónlist

Milkywhale frumsýnir nýtt myndband: „Danslag til að koma Airwaves fólki í gírinn“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Melkorka fer á kostum í myndbandinu.
Melkorka fer á kostum í myndbandinu.
Hljómsveitin Milkywhale frumsýnir í dag nýtt myndband við lagið Rhubarb Girl en í sveitinni eru þau Melkorka Sigríður Magnúsdóttir og Árni Rúnar Hlöðversson. Þau munu koma til með að koma fram á Iceland Airwaves á næstu dögum.

„Þetta er algjört danslag til að koma Airwaves fólki í gírinn fyrir næstu daga. Við bjuggum til lítinn rave-skemmtistað í hálfbyggðu skrifstofuhúsnæði í Reykjavík og tókum upp myndbandið þar,“ segir Melkorka.

Árni Filippusson sá um kvikmyndatökuna í myndbandinu og var það Magnús Leifsson sem leikstýrði því.

Hér að neðan má sjá bæði myndbandið og dagskrá sveitarinnar á Airwaves.

Miðvikudagur: Harpa Norðurljós 00:20-1:00

Fimmtudagur: Hlemmur Square (off venue) - 16:00-16:30

Föstudagur: Kaffihús Vesturbæjar (off venue) - 17:00-17:30pm

Laugardagur: Bryggjan Brugghús (off venue) - 16:00-16:30pm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×