Lífið

Miley Cyrus berar bakið á Instagram

Miley Cyrus er virk á samfélagsmiðlum.
Miley Cyrus er virk á samfélagsmiðlum. vísir/getty
Stórstjarnan og söngkonan Miley Cyrus er fjarri því að hætta að koma fólki að óvörum en hún birti nýverið mynd af sér á samfélagsmiðilinn Instagram þar sem hún klæðist einungis gallastuttbuxum og engu öðru.

Söngkonan er mjög virk á samfélagsmiðlinum og hikar ekki við að birta svokallaðar „selfies“ eða sjálfsmyndir þar sem hún stingur tungunni út. Telst það vera nokkurskonar einkennismerki stórstjörnunnar.

Nýjasta áhugamál Cyrus virðist einnig vera að föndra en nýjustu myndirnar á Instagram aðgangi stjörnunnar sýna hana með litríkt skraut í andlitinu og hárinu.

Myndirnar má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×