Fótbolti

Milan krækti í Bacca

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bacca skoraði tvö mörk í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í vor.
Bacca skoraði tvö mörk í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í vor. vísir/getty
AC Milan hefur fest kaup á kólumbíska framherjanum Carlos Bacca frá Sevilla. Ítalska liðið borgaði 21 milljón punda fyrir leikmanninn.

Bacca, sem er 28 ára, sló í gegn hjá Sevilla þar sem hann skoraði 49 mörk í 106 leikjum á tveimur árum. Hann vann Evrópudeildina bæði tímabilin hjá Sevilla.

Bacca er annar leikmaðurinn sem Milan kaupir í sumar á eftir ítalska miðjumanninum Andrea Bertolacci sem kom frá Roma.

Milan olli miklum vonbrigðum á síðasta tímabili og endaði í 10. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar. Eftir tímabilið var Filippo Inzaghi sagt upp störfum sem þjálfara liðsins og við tók Sinisa Mihajlovic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×