Lífið

Mila Kunis og Ashton Kutcher sögð vera gift – aftur

Samúel Karl Ólason skrifar
Ashton Kutcher og MIla Kunis.
Ashton Kutcher og MIla Kunis. Vísir/EPA
Fjölmiðlar ytra fullyrða að leikararnir Mila Kunis og Ashton Kutcher hafi gift sig um helgina. Það er í annað sinn á fjórum mánuðum sem slíkar sögur fara á kreik og í fyrra skiptið reyndust þær ekki sannar. People sagði fyrst frá þessu í gærkvöldi og hefur sú saga verið tekin upp af mörgum öðrum miðlum.

Talsmenn parsins hafa þó ekki tjáð sig um málið enn og fregnirnar hafa ekki verið staðfestar.

Í febrúar var Mila Kunis gestur í spjallþætti James Corden þar sem hún bar hring. Sá hringur koma af stað sögusögnum um að þau væru gift.

Kutcher (37) og Kunis (31) kynntust fyrst við tökur á þáttunum That '70s Show sem var sýndur frá 1998 til 2006. Þau byrjuðu þó ekki að hittast fyrr en árið 2012 en Kutcher skildi við Demi Moore árið 2013. Saman eiga þau eina dóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×