Innlent

Miklu magni dekkja stolið

Gissur Sigurðsson skrifar
Ekki fylgir sögunni hverrar gerðar dekkin eru, en lögreglan telur að þjófarnir reyni að koma þeim í verð.
Ekki fylgir sögunni hverrar gerðar dekkin eru, en lögreglan telur að þjófarnir reyni að koma þeim í verð.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar fólk við að kaupa nýja hjólbarða, sem kunna að verða boðnir til sölu á næstunni, sérstaklega er varað við gylliboðum á netmiðlum.

Ástæðan er að nýverið var brotist inn í hjólbarðalager við dekkaverkstæði og þaðan stolið um það bil hundrað hjólbörðum.

Mikill erill var á dekkjaverkstæðum í gær, enda voru margir ökumenn enn á sumardekkjum, en hálka var um allt land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×