Lífið

Miklar vangaveltur um hvort Björk syngi í nýrri útgáfu af lagi Kanye

Birgir Olgeirsson skrifar
Snapchat frá norska upptökustjóranum Cashmere Cat gaf það til kynna að Björk og Drake eigi innkomu í nýrri útgáfu af laginu Wolves með Kanye West.
Snapchat frá norska upptökustjóranum Cashmere Cat gaf það til kynna að Björk og Drake eigi innkomu í nýrri útgáfu af laginu Wolves með Kanye West. Vísir/Getty
Margir velta því fyrir sér hvort að Björk syngi í nýrri útgáfu af laginu Wolves með rapparanum Kanye West.

Lagið Wolves flutti Kanye West fyrsta skiptið opinberlega í fjörutíu ára afmælisþætti Saturday Night Live í febrúar í fyrra. Með honum fluttu lagið rapparinn Vic Mensa og tónlistarkonan Sia en ár leið þar til Wolves heyrðist aftur þegar Kanye frumflutti plötuna The Life of Pablo í Madison Square Garden í New York í febrúar síðastliðnum.

Útgáfan af Wolves sem heyrðist þar innihélt söng frá Frank Ocean og klassísku söngkonunni Caroline ShawVic Mensa og Sia voru hins vegar fjarri góðu gamni. 

Þegar The Life of Pablo kom út virtist Kanye hins vegar ekki alveg nógu ánægður með lagið Wolves og sagðist á Twitter ætla að laga það.

Nokkrum dögum síðar birtist útgáfa af Wolves á netinu með Vic Mensa og Sia.

Greint var frá því á vef Complex í gær að einhver hefði tekið skjáskot af Snapchat-i frá norska upptökustjóranum Cashmere Cat, sem kom að vinnslu á Wolves, þar sem hann sást hlusta á upptöku af Wolves sem var merkt rapparanum Drake og íslensku tónlistarkonunni Björk.

Eina heimildin sem til er um þessa útgáfu af laginu er þetta óljósa skjáskot frá Cashmere Cat.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×