Innlent

Miklar umferðartafir eftir að vatnsæð fór í sundur við Hringbraut

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Búist er við að vegurinn verði lokaður um nokkurn tíma á meðan unnið er að viðgerð
Búist er við að vegurinn verði lokaður um nokkurn tíma á meðan unnið er að viðgerð Vísir/Eyþór
Búist er við miklum umferðartöfum á Hringbraut eftir að kaltavatnsæð fór í sundur á Hringbraut, rétt austan við Hofsvallagötu. 

Lögregla er á vettvangi og búist er við að vegurinn verði lokaður um nokkurn tíma á meðan unnið er að viðgerð. Líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum hefur malbikið bólgnað upp eftir að vatnsæðin fór í sundur.

Kaldavatnslaust er á Hofsvallagötu, Furumel, Ljósvallagötu og hluta af Suðurgötu.



Vísir/Eyþór



Fleiri fréttir

Sjá meira


×