Golf

Mikko Ilonen sigraði á Volvo meistaramótinu í holukeppni

Ilonen hefur átt frábært tímabil.
Ilonen hefur átt frábært tímabil. Getty
Eitt vinsælasta mótið á Evrópumótaröðinni á hverju ári er Volvo holukeppnin en aðeins bestu kylfingar mótaraðarinnar hafa þátttökurétt.

Mótið kláraðist í dag eftir fjögurra daga holukeppnisveislu en finnski kylfingurinn Mikko Ilonen bar sigur úr bítum eftir spennandi úrslitaleik við sænsku ofurstjörnuna Henrik Stenson sem endaði á 17. holu.

Þrátt fyrir að aðstæður á London golfvellinum í Kent hafi verið erfiðar á lokahringjunum í dag fékk Illonen ekki einn einasta skolla í úrslitaleiknum ásamt fjórum fuglum og það var nóg til þess að leggja Stenson af velli, sem er af mörgum talinn einn besti holukeppnisspilari heims.

Í leiknum um þriðja sætið bar Hollendingurinn Joost Luiten sigurorð af Suður-Afríkumanninum George Coetzee í leik þar sem úrslit réðust ekki fyrr en á 19. holu.

Fyrir sigurinn fékk Mikko Ilonen 650.000 evrur sem eru langstærstu peningaverðlaun sem hann hefur unnið sér inn á ferlinum til þessa en hann sigraði einnig á Opna írska meistaramótinu sem fram fór í júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×