Innlent

Mikilvægt sé að skapa víðtæka sátt um aðildarviðræðurnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/getty
Samtök Atvinnulífsins hafa sent frá sér umsögn til Alþingis um aðildarviðræður Íslands og ESB en þar kemur fram að mikilvægt sé að skapa eins víðtæka sátt um aðildarviðræðurnar og unnt er.

Fram kemur að þrátt fyrir að ríkisstjórnin vilji ekki halda viðræðunum áfram, sé ávinningur þess að slíta viðræðunum enginn, þvert á móti sé ljóst að erfiðara yrði að taka upp viðræður að nýju skapist til þess vilji Alþingis.

Þetta kemur m.a. fram í umsögn SA til Alþingis um þingályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að slíta aðildarviðræðum Íslands við ESB. Umsögnina í heild má lesa hér.

Samtök atvinnulífsins telja nýja skýrslu Alþjóðamálastofnunar leiða sérstaklega vel í ljós hve mikilvægt það er fyrir hagsmuni Íslands að stjórnvöld ljúki viðræðum við Evrópusambandið og að niðurstaða fáist um öll samningsmarkmið sem Alþingi setti á sínum tíma.


Tengdar fréttir

Vigdís segir rök í ESB-skýrslu vera haldlaus

"Mér finnst þessi gagnrýni afskaplega ómakleg og bið hana vinsamlega að lesa úttektina áður en hún kemur með þvílíkar yfirlýsingar," segir einn skýrsluhöfunda

Evran gæti gengið að ESB dauðu

Þetta er mat eins kunnasta sérfræðings Evrópu í öryggis- og alþjóðastjórnmálum. Hann hvetur Íslendinga til að ganga í Evrópusambandið en halda sig víðs fjarri evrunni.

ESB liðkaði fyrir samningum með breyttum reglum

Heimild ESB til að leyfa einstökum ríkjum að ákveða aflaheimildir að uppfylltum ákveðnum skilyrðum virðist hafa verið sett inn til að opna glufu fyrir íslenska samningamenn. Erfitt gæti orðið að fá undanþágu til samninga við önnur ríki.

Landbúnaðarkerfi ESB hentar ekki fyrir Íslendinga

Stærstur hluti styrkgreiðslna til bænda í ESB miðast við landsvæði en ekki framleiðslu. Hentar illa hér á landi að mati höfunda skýrslu um ESB. Ísland ætti að geta haldið áfram að banna innflutning lifandi dýra.

Ísland áhrifalaust með EES-samningum

Pia Hanson, forstöðukona Alþjóðamálastofnunar, gagnrýndi EES-samninginn þegar hún kynnti skýrslu um Evrópumál. Hún sagði Ísland hafa innleitt tvo þriðju laga og reglna Evrópusambandsins nú þegar.

EES gæti lent í frosti að hluta

Ísland rekur lestina í innleiðingu EES-löggjafar. Fjármagnsflutningar innan EES eru ekki frjálsir líkt og samningurinn gerir ráð fyrir og ekki hafa verið gerðar breytingar á stjórnarskrá sem þarf til að innleiða eftirlit með fjármálastofnunum. Fjármálaráð

Niðurstöður skýrslunnar byggi á óskhyggju

Fyrstu viðbrögð við nýrri Evrópuskýrslu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands eru misjöfn eins og búast mátti við. Formaður utanríkismálanefndar segir væntingarnar sem túlkaðar eru af niðurstöðum vera heldur miklar.

Óttast ekki ESB umræðuna

Óskar Bergsson oddviti framsóknarmanna í Reykjavík telur ekki að ESB umræðan muni hafa áhrif á gengi flokksins í kosningunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×