Innlent

Mikilvægt að ungt fólk taki þátt í baráttunni

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Vísir/Pjetur
Dregið hefur úr stéttarvitund ungs fólks að mati formanns Verkalýðsfélags Akranes sem segir mikilvægt að breyta því. Hann segir vinnu við að bæta kjör launafólks aldrei ljúka og mikilvægt að fólk um allt land fjölmenni á baráttufundi í dag.

Nokkur verkalýðsfélög standa að hátíðardagkrá á Akranesi í dag. Göngu sem farin verður endar við sal Verkalýðsfélags Akraness þar sem baráttufundur verður haldinn. Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akranes er fundarstjóri.

„Það eru mörg verkefni fram undan við að bæta kjör íslensks verkafólks og launafólks. Það liggur alveg fyrir að vinnu við að bæta kjör launafólks lýkur aldrei. Þess vegna er mikilvægt að launafólk vítt og breitt um landið sýni samstöðu og mæti á þessa baráttufundi því við megum aldrei láta deigan síga, ef þannig má að orði komast.“

Vilhjálmur segir að dregið hafi úr stéttarvitund ungs fólks og mikilvægt sé að breyta því.

„Ég upplifi það þannig að ungt fólk þarf að kynna sér þessi mál betur taka þátt í baráttunni. Ég veit að verkalýðshreyfingin vítt og breitt um landið er að vinna í því að höfða meira til ungs fólks og láta þau taka þátt í þessari baráttu með okkur. Það skiptir höfuðmáli, þetta er jú lífsviðurværi fólksins sem að hér er undir þegar verið er að ræða kaup og kjör.“

Erfitt sé að segja til um hvað skýri áhugaleysi ungs fólks á kjarabaráttu.

„Ég held að skýringin geti verið í breyttu upplýsingaflæði með samskiptamiðlum og annað slíkt. Hér á árum áður var meiri þátttaka. Þetta er kannski líka okkur, sem stjórna verkalýðshreyfingunni, að einhverju leyti að kenna. Við þurfum að skoða alla möguleika á hvernig við getum aukið hlutdeild ungs fólks í stéttarfélags baráttunni á Íslandi og þurfum að skoða allar leiðir hvað það varðar,“ sagði Vilhjálmur Birgisson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×