Innlent

Mikilvægt að klára lífeyrissjóðsmálið á þessu þingi

Sveinn Arnarsson skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar.
Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar. vísir/stefán
Mikilvægt er að mati meirihluta fjárlaganefndar að afgreiða lagafrumvarp Bjarna Benediktssonar um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins þótt óánægju gæti meðal stórra stéttarfélaga. Forsvarsmenn stéttarfélaga komu fyrir fjárlaganefnd í gær þar sem þeir útskýrðu afstöðu sína til frumvarpsins. Þeir telja frumvarpið ekki endurspegla samkomulagið sem undirritað var milli ríkis og stéttarfélaga. Um gríðarlega fjármuni er að ræða.

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar.vísir/pjetur
Guðlaugur Þór Þórðarson segir samkomulag milli aðila hafa verið nokkuð skýrt. „Því kom þetta nokkuð á óvart, þetta viðhorf stéttarfélaganna. En nú þarf að setjast yfir þetta,“ segir Guðlaugur.

„Þessi gagnrýni er nokkuð seint fram komin en kemur líklega til vegna þess hve seint frumvarpið kemur fram,“ segir Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar. „Þetta er tímamótasamkomulag og það þarf að stoppa upp í þetta gat. Ríkið er að koma með inn í þetta um eitt hundrað milljarða króna sem er engin smáupphæð sem hægt er að færa inn í kerfið. Ef einhver annar verður við völd eftir kosningar veldur þetta fjármagn freistnivanda til að nota í eitthvað allt annað.“

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir segir mjög ólíklegt að málið fari í gegnum fjárlaganefnd án þess að breytingar verði gerðar á frumvarpinu. Hún segir skýringar stóru stéttarfélaganna ítarlegar og sýna að það þurfi að gera breytingar á frumvarpinu. Einnig bendir hún á að fjármagnið glatist ekki við að fresta þessu fram yfir áramót.

„Ég er ekki að sjá fjármálaráðherra fara með þetta áfram óbreytt því þá kemst þetta ekki í gegnum þingið. Við munum spyrna við fótum í stjórnarandstöðu verði ekki gerðar breytingar,“ segir Bjarkey. „Bjarni hefur sagt að hann vilji gera þetta í sátt og því mun hann að öllum líkindum fara eftir þessum tilmælum,“ bætir hún við.

Guðlaugur Þór segir það skipta miklu máli að klára málið á þessu þingi. Nú sé ákveðinn gluggi opinn til að fara í þetta stóra verkefni og að hann lokist um áramót. Því hljóti það að vera keppikefli að ráðast í þetta á þessu þingi og leyfa málinu að fara í gegnum þingið. „Með langtímaáætlun í ríkisfjármálum má ekki vera með halla á ríkissjóði fyrir ákveðið árabil. Nú erum við með nokkur hundruð milljarða afgangs og því mögulegt að veita miklu fé inn í lífeyriskerfið. Ef við gerum þetta ekki núna gerum við þetta aldrei. Ég efast um að það sé vilji fyrir því að skorið verði niður á næstu árum til að gera þetta.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Segja samkomulagið virt að vettugi

KÍ og BSRB segja frumvarp fjármálaráðherra ganga þvert gegn samkomulagi sem skrifað var undir þann 19. september. Verði frumvarpið að lögum gæti það haft mikil neikvæð áhrif á samskipti félaganna við ríkið.

Saka stjórnvöld um útúrsnúning 

Kennarasambandið styður ekki frumvarp um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna sem nú er til meðferðar á Alþingi. Sambandið telur trúnaðarbrest milli þess og ríkisvaldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×