Innlent

Mikilvægt að innanríkisráðherra hefði ekki afskipti af rannsókn lekamálsins

Heimir Már Pétursson skrifar
Bjarni sagðist hann ekki hafa lesið bréf umboðsmanns frá í gær.
Bjarni sagðist hann ekki hafa lesið bréf umboðsmanns frá í gær.
Bjarni Bendiktsson formaður Sjálfstæðisflokknum sagði í þættinum Sprengisandi fyrir rúmri viku, að það skipti sköpum hvort innanríkisráðherra hefði haft óeðlileg afskipti af rannsókn lekamálsins.

Í bréfi umboðsmanns Alþingis til innanríkisráðherra í gær, kemur fram að hún hafi gert alls kyns athugasemdir við rannsóknina í fjölmörgum símtölum og á fundum með Stefáni Eiríkssyni fráfarandi lögreglustjóra og m.a. spurt hann hvort rannsóknin gengi ekki of langt. Þá teldi hún að rannsaka þyrfti rannsókn lögreglu og ríkissaksóknara á málinu.

Þegar Bjarni var spurður um stöðu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á Sprengisandi hinn 17. ágúst sagði hann m.a.:

"Ég get sagt fyrir mitt leyti, þá skiptir það sköpum í málinu hvort ráðherrann hefur haft beina aðkomu eða með einhverjum hætti óeðlileg afskipti, t.d. hefur verið rætt mikið um það að undanförnu hvort rannsókn málsins hafi fengið að ganga fram án afskipta, það skiptir miklu máli,” sagði Bjarni og er þá spurður:

Að hún tali við rannsakandann á leiðinni, á meðan málið er í rannsókn…?

„Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er sú að ég tel að það sé ekkert fram komið sem sýni fram á það að ráðherrann eða starfsmenn ráðuneytisins hafi gert neitt annað en að reyna að greiða fyrir því að rannsókn málsins færi fram,“ sagði Bjarni.

Þegar Bjarni var spurður um stöðu inanríkisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun, sagðist hann ekki hafa lesið bréf umboðsmanns frá í gær en sagði svo:

„Ráðherrann hefur fullt traust til að svara fyrir þessar ásakanir. Hún hefur traust til að gegna sínu embætti. Það hefur ekkert breyst hvað það snertir. Og ég segi bara ekki annað í þessu en að ráðherrann hlýtur að eiga rétt á því að fá að bregðast við, með því að fá tíma til að svara og ég veit að ráðherrann hyggst gera það,“ sagði Bjarni.

Umboðsmaður Alþingis hefur gefið innanríkisráðherra frest til 10. september til að svara bréfi hans frá í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×