Skoðun

Mikilvægi tómstunda

Dóra Sveinsdóttir skrifar
Skipulagt tómstundastarf er að mínu mati ein af bestu forvörnum sem völ er á og hvet ég alla foreldra að íhuga mikilvægi þess þegar kemur að velferð barna og unglinga.

Rannsóknir sýna að börn og unglingar sem stunda skipulagt tómstundastarf þrói síður með sér andfélagslega hegðun en þeir sem ekki eru í slíku starfi.

Ef barn eða unglingur stundar eitthvað heilbrigt eins og tómstundir þar sem hann umgengst hóp með sömu markmið og hann sjálfur eru líkur á að hann hafi minni tíma til aflögu til að leiðast út í óæskilega hluti.

Tómstundir barna og unglinga geta verið margskonar. Þær geta verið skipulagðar, eins og t.d. íþrótta- og æskulýðsstarf og svo eru líka til óskipulagðar tómstundir en í þann flokk fellur t.d. sjónvarpsáhorf með vinum eða það að fara í sund.

Tómstundir hafa ýmsa kosti. Einstaklingur er í félagsskap, æfir sig í einhverju sem viðkomandi hefur áhuga á og svo er það mátturinn í að geta alltaf gert betur.

Unglingsárin geta reynst mörgum mjög erfið en rannsóknir sýna að þeir sem koma best út úr því tímabili eru þeir sem sem eru búnir að skapa sér góða sjálfsmynd á þeim tíma. Aðalverkefni unglings er að finna út hver hann er.

Sjálfsmynd er stór þáttur í andlegri líðan, en hún er sú sýn sem við höfum á okkur sjálfum. Það má segja að sjálfsmynd og sjálfstraust séu hálfgerð systkini, sá sem hefur gott sjálfstraust hefur góða sjálfsmynd.

Það er þó töluvert brottfall úr íþróttum á unglingsárum og það má m.a. rekja til lélegs sjálfstrausts og of mikillar áherslu á að vera bestur. Þeir sem eru meðalgóðir og stunda íþróttina því þeim finnst það skemmtilegt, mæta til þess að vera með i hópnum og fá hreyfingu og hafa gaman detta út þvi þeir finna pressuna um að vera bestir fyrir komandi mót, meiri áhersla á að skara framúr en að hafa gaman.

Það eru margar tegundir af tómstundastarfi í flestum bæjarfélögum og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Til að gera foreldrum auðveldara fyrir að eiga barn í tómstundum þá bjóða mörg sveitafélög upp á frístundastyrk.

Til að mynda gefur Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkurborgar út frístundakort með styrk upp á 30.000 ár hvert fyrir hvert barn, en um síðustu áramót hækkaði hann um 5.000 krónur, glæsilegt hjá Reykjavíkurborg.

Kópavogsbær býður upp á 27.000 kr. í tómstundastyrk og Garðabær býður upp á 27.000 kr. ár hvert. Tómstundir eru alls ekki ódýrara í lagi og þá sérstaklega ef fjölskylda á fleiri en eitt barn í tómstundastarfi. Vonandi mun kostnaður lækka næstu ár eða styrkurinn hækka þar sem bla bla bla bla.

Ég hvet foreldra eindregið til að leggja áherslu á tómstundaiðkun barna sinna þar sem kostir þess eru ótvíræðir.

Lesendur Vísis geta sent inn greinar á ritstjorn@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi.




Skoðun

Sjá meira


×