Innlent

Mikill vilji til að sameina sveitarfélög

Snærós Sindradóttir skrifar
Alls eru 74 sveitarfélög á Íslandi. Í því fámennasta, Árneshreppi, búa 54.
Alls eru 74 sveitarfélög á Íslandi. Í því fámennasta, Árneshreppi, búa 54.
„Við söknum þess að það sé ekkert frumvæði í ráðuneytinu og að þessi mál séu ekki sett á oddinn hjá stjórnmálaflokkum og þessi umræða tekin,“ segir Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraness, um sameiningu sveitarfélaga. Í gær greindi Fréttablaðið frá tillögum Samtaka atvinnulífsins um að fækka megi sveitarfélögum úr 74 í níu stór sveitarfélög.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra
Regína tekur tillögum SA fagnandi og hefur sjálf talað fyrir sameiningu. „Það eru gríðarlegir fjármunir að fara í sameiginlegan kostnað svo sem nefndarkostnað og kostnað vegna yfirstjórnar. Ég held að við getum gert betur og sett meiri pening í þjónustuna ef við höfum færri og sterkari sveitarfélög.“

Tilhneiging margra minni sveitarfélaganna hefur þó verið að lýsa yfir andstöðu við sameiningu.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir að innan ráðuneytisins hafi verið umræða um sameiningu allt kjörtímabilið. „Það er alltaf þessi spurning um hvort það eigi að þvinga sveitarfélögin til sameiningar eða ekki. Við höfum verið þeirrar skoðunar að þetta þurfi að gerast að þeirra frumkvæði. Það sé ríkisins að ýta undir það þegar menn sjá hag sinn í sameiningu.“

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akraness
Í Fréttablaðinu í gær kom til dæmis fram að enginn lágmarksíbúafjöldi sveitarfélaga sé festur í lög. Í Danmörku voru sett lög um að íbúafjöldi sveitarfélaga yrði að lágmarki 20 þúsund íbúar og þannig var minni sveitarfélögum gert að sameinast. Innan Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur þessi aðferð til að mynda verið rædd.

„Það er ekki verið að undirbúa nein lagafrumvörp um þetta. Mér finnst mikilvægt að þetta sé samtal á milli sveitarstjórnarstigsins og ríkisins. En þvingun er ekki skynsamleg. Það endar með því að það geta orðið árekstrar sem er ekki æskilegt,“ segir Ólöf. Hún fagnar þó tillögum SA inn í umræðuna og segir áhugavert sjónarmið að fækka sveitarfélögunum jafn mikið og þær gera ráð fyrir.

Ólafur Áki Ragnarsson sveitarstjóri Vopnafjarðar
Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps, tekur sömuleiðis jákvætt í tillögurnar. „En þetta kallar á viðhorfsbreytingu í stjórnkerfinu. Ríkið þarf að færa verkefni til sveitarfélaganna því við megum ekki bara sameina sveitarfélög til að veikja þau.“

Hann nefnir sem dæmi að við hagræðingu og samþjöppun sé líklegt að einhver störf sérfræðinga glatist. „Þá þurfum við að fá eitthvað á móti til að halda fjölbreytni í þessum samfélögum. Ef ríkið kæmi rausnarlega á móti með því að flytja störf til sveitarfélaganna sem kalla á að fólk sé með ákveðna menntun. Það er það sem okkur vantar úti á landi.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

SA vilja fækka sveitarfélögum úr 74 í 9

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, undrast tillögur Samtaka atvinnulífsins í átt til meiri miðstýringar. Hann segist þó jákvæður gagnvart því að ná fram meiri hagræðingu í rekstri sveitarfélaganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×