Innlent

Mikill viðbúnaður við Aðalstræti í morgun

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Frá Ingólfstorgi.
Frá Ingólfstorgi. vísir/valli
Sérsveit lögreglu var kölluð til vegna líkamsárásar í Aðalstræti í Reykjavík á sjöunda tímanum í morgun. Að sögn sjónvarvotta var viðbúnaður umtalsverður.

Lögregla segir í samtali við Vísi að um hafi verið að ræða líkamsárás á milli heimilisfólks annars vegar og gestkomandi hins vegar. Enginn hafi þó verið fluttur á slysadeild.

Málið er nú í rannsókn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×