Erlent

Mikill meirihluti Ungverja hafnar kvótaflóttafólki

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands.
Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands. Nordicphotos/AFP
Ungverjar kusu um það í dag hvort þjóðin skyldi veita fámennum hópi flóttamanna hæli í landinu. 98 prósent þeirra sem greiddu atkvæði í kosningunni vildu hafna því að hleypa flóttamönnum inn í landið.

Ungverjaland hefur tekið harða afstöðu í innflytjendamálum og hefur hingað til ekki veitt einum einasta flóttamanni hæli. Ungverjar innleiddu lög í júlí á síðasta ári sem gerðu ólöglega inngöngu í landið refsiverða. Þeir hafa jafnframt gripið til þess ráðs að reisa 175 kílómetra girðingu við landamæri Ungverjalands og Serbíu til þess að koma í veg fyrir að flóttamenn ættu greiða leið inn í landið.

Stefna Ungverja í innflytjendamálum hefur bakað þjóðinni miklar óvinsældir innan Evrópusambandsins. Jean Asselborn, utanríkisráðherra Lúxembúrgar lýsti því til að mynda yfir fyrir skömmu að hann vildi að Ungverjar myndu yfirgefa ESB vegna stefnu sinnar.

Viktor Orban eyddi milljörðum í herferð gegn innflytjendum

Atkvæðagreiðslan er hugarfóstur Viktors Orban, forsætisráðherra Ungverjalands. Aðdragandi hennar er sá að Evrópusambandið gerði Ungverjalandi, ásamt öðrum ríkjum ESB, skylt að veita tilteknum fjölda flóttamanna hæli í landinu, sem í daglegu tali eru kallaðir kvótaflóttamenn.

Ungverjum var gert að taka á móti 1.294 kvótaflóttamönnum sem verður að teljast lítill fjöldi en íbúar í Ungverjalandi eru um 9,8 milljónir. Orbán tilkynnti í febrúar að þjóðin skyldi fá að greiða atkvæði um ákvörðunina.

Orbán hefur ekki farið í felur með skoðanir sínar varðandi flóttamannamál en hann er mikill andstæðingur þess að veita flóttamönnum frá miðausturlöndum hæli í Evrópu. Ríkisstjórn Orbáns hefur alls eytt um 5,1 milljarði króna í „upplýsandi kosningaherferð“ sem átti að sannfæra þjóðina um að kjósa gegn kvótaflóttamönnunum.

Á sunnudaginn var skrifaði Orbán pistil í dagblaðið Magyar Idok þar sem hann sagði að „stjórnlausir fólksflutningar í miklum mæli fælu í sér mikla ógn. Þeir leggðu hinn friðsæla og örugga evrópska lífsstíl í hættu.“

Atkvæðagreiðslan mögulega ógild

Þótt 98 prósent þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni hafi hafnað kvótaflóttamönnum er ekki enn komið í ljós hvort kosningin sé gild. Til þess að hún teljist gild þarf kjörsókn að vera 50 prósent en heimildir frá innanbúðum ríkisstjórnarinnar herma að kjörsóknin hafi líklegast ekki verið meiri en 45 prósent.

Viktor Orbán hefur þó lýst því yfir að niðurstöðurnar séu „yfirþyrmandi“ og að augljóst væri að Evrópusambandið gæti ekki þvingað þjóðina til þess að taka á móti flóttamönnum. 








Tengdar fréttir

Vill Ungverjaland úr Evrópusambandinu

Forsætisráðherra Lúxemborgar segir meðferð Ungverja á flóttafólki verða sífellt verri. Ungverjar búa sig nú undir þjóðaratkvæðagreiðslu um stefnu stjórnarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×