Erlent

Mikill eldsvoði í Bergen

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
mynd/skjáskot/VG
Mikill eldur kviknaði í að minnsta kosti þremur timburhúsum í miðborg Bergen í Noregi um klukkan hálf fimm að staðartíma í morgun. Eldurinn breiddist hratt á milli húsa og þurfti á fimmta tug að yfirgefa heimili sín. Einn sakaði minniháttar.  Greint er frá þessu á vef Verdens Gang.

Slökkvilið náði svo tökum á eldinum á níunda tímanum. Húsin þrjú eru ónýt og rífa þurfti þak af því fjórða. Upptök eldsins eru enn sem komið er ókunn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×