Viðskipti erlent

Mikil umræða um hvort „Emoji" sé spenntar greipar eða „gef mér fimmu“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá skjáskot úr frétt ABC um málið.
Hér má sjá skjáskot úr frétt ABC um málið.
Mikil umræða fer nú fram í erlendum fjölmiðlum og á samskiptamiðlum um hvort að nýtt merki - svokallað Emoji - sem nota má í netsamskiptum sýni spenntar greipar eða tvær hendur að „gefa fimmu“.

Fyrirtækið Unicode, sem starfar með Apple, sérhæfir sig í hönnun Emoji-merkjanna sem eru mikið notuð af fólki á samskiptamiðlum. Emoji-merkin eru litlar myndir sem nota má til að sýna ákveðnar tilfinningar eða koma tilteknum skilaboðum á framfæri.

Í gær fjallaði fréttastofa ABC um málið og í frétt hennar var því haldið fram að þetta umdeilda Emoji-merki væri í raun tvær hendur að „gefa fimmu“. Vefsíðan Gawker birti umfjöllun um málið og þar kom fram að frétt ABC væri röng - þetta væru spenntar greipar og í greinninni voru færð nokkur mismunandi rök tekin fram fyrir því.

Fyrr í mánuðinum fjallaði vefurinn Desert-news um málið og birti tíst mikils fjölda manns sem deildu um hvað þetta Emoji-merki þýddi í raun. Já, þetta virðist skipta marga miklu máli, eins og má sjá hér að neðan.

Líklega mun þó merking þessa Emoji-merkis ráðast af því hvað hverjum og einum finnst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×