Menning

Mikil litagleði og frjálsleg tjáning

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
„Þetta er eiginlega fyrsta kynslóð málara hér á 21. öldinni,“ segir Birta Fróðadóttir sýningarstjóri.
„Þetta er eiginlega fyrsta kynslóð málara hér á 21. öldinni,“ segir Birta Fróðadóttir sýningarstjóri. Vísir/GVA
Ég byrjaði á því að velja listamennina og setja þá saman í þessa sýningu,“ segir Birta Fróðadóttir, arkitekt og sýningarstjóri myndlistarsýningarinnar Vara-litir sem opnuð verður í Hafnarborg á morgun. „Samnefnarinn er sá að þetta er allt fígúratíft myndefni og það er mikil litagleði og frjálsleg tjáning í þessum verkum.“



Á sýningunni Vara-litir eru málverk eftir sjö samtímamyndlistarmenn sem allir eru fæddir eftir 1970 og vinna markvisst að málaralist í sköpun sinni. Á sýningunni eru ný verk eftir Gabríelu Friðriksdóttur, Guðmund Thoroddsen, Helga Þórsson, Huldu Vilhjálmsdóttur, Ragnar Þórisson, Þorvald Jónsson og Þórdísi Aðalsteinsdóttur, alls 52 verk. „Þetta er eiginlega fyrsta kynslóð málara hér á 21. öldinni,“ segir Birta. „Þau eru misþekkt en eiga það sameiginlegt að verk þeirra eru hlaðin litum og formum sem endurspegla tíðaranda 21. aldarinnar.“



Allir verða listamennirnir viðstaddir opnunina á morgun, nema Þórdís Aðalsteinsdóttir sem er búsett erlendis. „Síðan munu einhver þeirra verða með listamannsspjall á sýningunni þegar líður á sýningartímann, en það verður auglýst nánar á heimasíðu Hafnarborgar,“ segir Birta.

Sýningin stendur til 4. janúar á næsta ári. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×