Mikil gróska í bjórframleiðslu á Íslandi

Fréttablaðið Viðskipti innlent 08. febrúar 2012 11:00
Íslenskum bjórtegundum sem seldar eru í Vínbúðunum hefur fjölgað um helming á síðustu árum. Fréttablaðið/GVA
Íslenskum bjórtegundum sem seldar eru í Vínbúðunum hefur fjölgað um helming á síðustu árum. Fréttablaðið/GVA
Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar:
Bjórmenning á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Fjöldi og fjölbreytileiki íslensks bjórs hefur aukist mikið og þá hafa árstíðabundnar bjórtegundir orðið æ vinsælli. Um þessar mundir eru um 50 tegundir af íslenskum bjór í boði í Vínbúðum en voru ekki nema helmingur þess fyrir fáum árum. Þróunina má ekki síst rekja til tilkomu minni brugghúsa sem hafið hafa störf. Ölgerðin og Vífilfell eru þó enn langstærst á markaðnum
Fyrsta litla brugghúsið á Íslandi var Bruggsmiðjan á Ársskógssandi. Hugmyndin vaknaði hjá hjónunum Agnesi Sigurðardóttur og Ólafi Þresti Ólafssyni eftir að hafa séð frétt um lítið brugghús í Danmörku. Fyrirtæki þeirra var stofnað í lok árs 2005 og framleiðsla hófst ári síðar. Gerðu þau upphaflega ráð fyrir framleiðslu upp á 170 þúsund lítra á ári en hafa tvívegis aukið framleiðslugetuna sem er nú 550 þúsund lítrar.

„Við vorum algjörlega að renna blint í sjóinn. Okkar einu markmið voru að skapa störf og nýta frábæra vatnið okkar,“ segir Agnes og heldur áfram: „Þetta hefur gengið vonum framar og aldrei átti ég von á því að hjón á Ársskógssandi gætu breytt bjórmenningunni á Íslandi.” Nefnir Agnes sem dæmi að árið 2007, þegar þau hófu að brugga dökkan bjór, var enginn íslenskur dökkur bjór í framleiðslu. Nú séu þeir hins vegar orðnir algengir.
Sjö starfa hjá Bruggsmiðjunni, þar af fimm í fullu starfi, sem selur nú fimm bjórtegundir allan ársins hring undir nafninu Kaldi. Þá hefur fyrirtækið bruggað árstíðabundna bjóra auk nokkurra bjóra fyrir aðra aðila. Til að mynda hefur það nýhafið bruggun á gosbjórnum Volcanic Energy sem er fyrsti íslenski gosbjórinn.


Misjafnt gengi
Árið 2007 hófu þrír aðilar til viðbótar að selja íslenskan bjór í litlu upplagi. Fyrstan ber að nefna Eyþór Þórisson, veitingamann á Seyðisfirði, sem hóf að selja bjórinn El Grillo. Í dag eru tvær útgáfur af honum í sölu en Ölgerðin bruggar bjórinn fyrir Eyþór.
Þá voru tvö brugghús stofnsett árið 2007: Ölvisholt í Flóahreppi og Mjöður í Stykkishólmi. Ölvisholt kom sér upp framleiðslugetu upp á 300 þúsund lítra á ári og hefur framleitt bjórana Freyju, Móra, Lava Stout og Skjálfta auk árstíðabundinna bjóra. Mjöður í Stykkishólmi framleiddi tvo bjóra: Jökul og Skriðjökul en hætti starfsemi á síðasta ári. Nýjasta brugghúsið er svo Gæðingur öl í Útvík í Skagafirði sem hóf starfsemi í fyrra. Gæðingur framleiðir fjóra bjóra undir eigin nafni og hefur einnig framleitt árstíðabundna bjóra.
„Við áætlum að framleiða 45 þúsund lítra fyrsta starfsárið en eigum að geta framleitt 100 þúsund lítra,“ segir Jóhann Axel Guðmundsson, bruggari hjá Gæðingi. Þá segir Jóhann viðtökurnar hafa verið framar vonum.
Þrátt fyrir góðar viðtökur virðist rekstur litlu brugghúsanna hafa verið erfiður. Eins og áður sagði hætti Mjöður starfsemi í fyrra og þá varð fyrirtækið utan um framleiðsluna í Ölvisholti gjaldþrota árið 2010. Í kjölfarið var reksturinn keyptur af félagi í eigu starfsmanna, innflutningsfyrirtækisins Karls K. Karlssonar og Eignarhaldsfélags Suðurlands. Nýja félagið hefur enn ekki skilað ársreikningi en ætla má að skuldir reynist rekstrinum ekki jafn þungar og þær gerðu eftir bankahrunið.
Bruggsmiðjan skilaði einnig tapi fyrstu rekstrarár sín, sýnu mest árið 2008. Árið 2010 skilaði fyrirtækið hins vegar 6,5 milljóna hagnaði og virðist því hafa komið undir sig fótunum rekstrarlega.


Vífilfell og Ölgerðin stærst
Eins og áður sagði eru það þó Vífilfell og Ölgerðin sem ráða lögum og lofum á bjórmarkaðnum. Vífilfell framleiðir rúmlega 9 milljónir lítra á ári og Ölgerðin 7 milljónir lítra. Samanlögð markaðshlutdeild þeirra er því sennilega í kringum 90 prósent. Bæði fyrirtækin hafa aukið vöruúrval sitt á síðustu misserum og opnaði Ölgerðin eigið smábrugghús árið 2010, Borg.
„Markmiðið með þessu var að búa til bjór sem er öðruvísi og kannski að mörgu leyti sérstakari en þessir klassísku bjórar okkar. Við viljum þjónusta þennan hóp sem er að leita að fjölbreyttari tegundum af bjór,“ segir Guðmundur Mar Magnússon, bruggmeistari Ölgerðarinnar. Þá segir hann viðbrögðin við Borg hafa verið gríðarlega góð og hafi þeir vart undan að anna eftirspurn. Átta ólíkar bjórtegundir hafa verið framleiddar hjá Borg en fimm þeirra eru í sölu hjá Vínbúðunum núna.
Vífilfell er stærsti bjórframleiðandi landsins með um helmingsmarkaðshlutdeild. Þekktustu vörur Vífilfells eru Víking og Carlsberg en síðustu misseri hefur Vífilfell kynnt til sögunnar svokallaða úrvalslínu sem inniheldur meðal annars árstíðabundna bjóra.
„Við byrjuðum með sérbjóra stuttu áður en litlu brugghúsin fóru að spretta upp. Við fluttum þá inn bjóra frá Jacobsen, í eigu Carlsberg. Þá hins vegar virtist markaðurinn ekki tilbúinn fyrir þessa bragðmeiri og sérstakari bjóra. Á þeim árum sem eru liðin hefur menningin hins vegar þróast hratt sem hefur kannski ekki síst endurspeglast í vinsældum tíðarbjóranna,“ segir Hreiðar Þór Jónsson, markaðs- og sölustjóri áfengis hjá Vífilfelli.

Fleiri fréttir - Viðskipti innlent

Viðskipti innlent 25. maí. 2012 15:04

Óvíst að fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar sé raunhæf

Greining Arion banka segir óvíst að fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2013-...  

Meira
Viðskipti innlent 25. maí. 2012 14:34

Rekstrarhagnaður Eimskips rúmur milljarður

Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. (...  

Meira
Viðskipti innlent 25. maí. 2012 10:27

Landsbankinn selur hlut sinn í Hampiðjunni

Landsbankinn hf. hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni hf. e...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 19:15

Rannsökuðu gjaldþol Milestone

Rannsóknir lögreglumannanna tveggja sem kærðir hafa verið ríkissaksóknara, fyrir brot á þa...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 16:52

Landsbankinn ræðst í niðurskurð - lokar útibúum

Landsbankinn mun ráðast í mikinn niðurskurð, sem felur meðal annars í sér lokun útibúa, á ...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 16:24

Telur að hann hafi átt að fá aðgang að gögnunum

Skiptastjóri þrotabús Milestone segir að öll þau gögn sem afhent voru á grundvelli rannsók...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 15:46

OR semur um breytingar á afborgunum lána

Orkuveita Reykjavíkur hefur samið við Dexia Crédit Local bankann um breytingar á afborgunu...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 14:43

Samherji kærir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar

Samherji hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, frá því í síðustu viku, til Hæstarétta...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 14:05

Rauðar tölur lækkunar í kauphöllinni

Gengi hlutabréfa hjá félögum sem skráð eru á markað í Kauphöll Íslands hafa lækkað nokkuð ...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 12:00

Unnu skýrslu um gjaldþol Milestone - sinna rekstri á sviði rannsókna

Lögreglumennirnir tveir sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, Guðmundur Haukur Gunnar...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 10:31

Framtíð Lýsingar í húfi

Hæstiréttur kveður í dag upp dóm í máli fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar gegn Smákrönum....  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 10:15

Keldan, Vísir og Kauphöllin setja á fót ávöxtunarleik

Keldan.is, Vísir.is og Kauphöllin hafa gengið frá samstarfssamningi um nýjan ávöxtunarleik...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 09:57

Jónas Fr: RNA hafði rangt fyrir sér

"Hæstiréttur staðfesti nýlega dóm fjölskipaðs héraðsdóms þar sem felld var úr gildi stjórn...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 09:15

Lögreglumennirnir mættu í dómsal í máli Lárusar og Guðmundar

Tveir fyrrum lögreglumenn sem störfuðu fyrir embætti sérstaks saksóknara hafa verið kærðir...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 09:11

Verðbólgan 5,4 prósent - lækkar um eitt prósentustig

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí er 398,1 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 16:14

Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing sýknað af kröfum Smákrana

Hæstiréttur sýknaði í dag fjármögnunarfyrirtækið Lýsingu af kröfum Smákrana vegna fjármögn...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 21:15

Reykjanesbær búinn að veita samþykki

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti fjárhagslega endurskipulagingu Eignarhaldsfélagsins Fast...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 20:00

179 umsóknir til að komast í tíu teymi

Alls bárust 179 umsóknir frá yfir 400 einstaklingum um þátttöku í Startup Reykjavík, örfjá...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 19:15

Risafjárfesting í fiskeldi sem nýtir kælivatn virkjunar

Milljarða uppbygging fiskeldisstöðvar er hafin á Reykjanesi, sem nýta mun kælivatn virkjun...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 16:15

Landsbankinn hækkar vexti á óverðtryggðum lánum

Landsbankinn hefur hækkað vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum sínum. Óverðtryggðir vextir ...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 15:30

Stoðir vilja 22 milljarða frá Glitni

Stoðir lýstu riftunarkröfu á hendur Glitni banka á árinu 2009 vegna veðréttatilfærslna og ...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 15:29

Tíu sóttu um stöðu forstjóra FME

Tíu manns sóttu um stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins sem auglýst var laust til umsóknar...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 15:00

Mikil starfsemi hjá málsvörum atvinnulífs

Velta þeirra hagsmunasamtaka sem starfa fyrir íslenskt atvinnulíf er á annan milljarð á ár...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 14:00

Glitnir vill fá fjórtán milljarða frá Stoðum

Slitastjórn Glitnis hefur stefnt Stoðum, sem áður hétu FL Group, til að greiða sér fjórtán...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 10:59

Ljósmyndara vísað á dyr á aðalfundi Bakkavarar

Ágúst Guðmundsson, sem kenndur er við Bakkavör, ákvað upp á sitt einsdæmi að vísa ljósmynd...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 09:36

Hætta mögulega Tchenguiz-rannsókn

Hugsanlegt er að rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, ...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 16:30

Fer frá Össuri til Háskóla Íslands

Hilmar Bragi Janusson, framkvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknastarfs hjá Össuri hf., tek...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 09:57

Hagnaður Arion nam 4,5 milljörðum

Hagnaður Arion banka á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 4,5 milljörðum króna eftir skatta en...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 08:00

Ákærður fyrir innherjasvik hjá Glitni

Sérstakur saksóknari hefur ákært Friðfinn Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 21:57

Reginn hf. hagnaðist um 138 milljónir á fyrsta ársfjórðungi

Rekstrartekjur Regins hf. dótturfélags Landsbankans, á fyrsta ársfjórðungi þessa árs námu ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 17:45

Vonast til að færeyska olíuævintýrið sé að byrja

Dýrasta og viðamesta olíuborun til þessa á landgrunni Færeyja er fyrirhuguð í sumar. Hún g...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 17:23

Gengi Össurar hækkaði skarplega

Gengi hlutabréfa í Össuri hækkað um tæplega 3 prósent í dag, eftir að tilkynnt var um boð ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 16:09

Bjóðast til að kaupa allt hlutafé í Össuri

William Demant lýsti í dag yfir vilja sínum til þess að kaupa öll hlutabréf í stoðtækjafyr...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 15:15

"Kómískt“ að sjá nefnd snillinga verðleggja fjármuni

Gunnlaugur Jónsson fjárfestir segir nýja nálgun að fjármálakerfum vera lífsnauðsynlega svo...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 13:32

Kjaradeilu sjómanna vísað til sáttasemjara

Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins vísuðu í dag kjaraviðræðum útv...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 13:20

ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu

ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu með innheimtu fjársýsluskatts frá lífeyrissjóðu...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 10:37

Sigurjón Sighvatsson vill milljarð frá Glitni

Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur stefnt þrotabúi Glitnis vegna viðskipta v...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 10:24

Launavísitalan lækkar um 0,1 prósent

Launavísitala í apríl 2012 er 431,4 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 10:07

Aflaverðmæti eykst um 28,1 prósent milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 09:11

Arionbanki hækkar vexti

Arion banki hefur hækkað vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum. Vaxtahækkunin kemur í kjöl...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 17:14

Gengi Facebook hrynur

Gengi Facebook hefur hrunið í dag, og nemur lækkunin það sem af er degi tæplega 9 prósentu...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 16:59

Tölvur og linsur á Suðurskautinu

Höfuðstöðvar Nýherja iðuðu af lífi þegar fréttastofa heimsótti þær á dögunum. Þetta er önn...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 15:08

Eignarhaldsfélag Hörpu selur í Marel

Eignarhaldsfélag Hörpu, þar sem Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarm...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 09:15

Vísitala byggingarkostnaðar lækkar lítið eitt

Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og er hún nú 114,9 st...  

Meira
Viðskipti innlent 20. maí. 2012 20:15

Rannsóknin á Kaupþingsviðskiptum myndi taka mörg ár

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, eða Serious Fraud Office, varaði bræðurna Robert o...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 13:27

Mátti greiða 10 milljarða fyrir að láta Kaupþingsmál niður falla

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, bauðst til þess að láta rann...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 13:00

Mikill áhugi á Facebook

Það var líflegur dagur í Nasdaq-Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í gær þegar viðski...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 10:00

Leiguverð fer enn hækkandi

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6 prósent á milli apríl og maí. Síða...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Skoðun

Umsókn um málfrelsi

Umsókn um málfrelsi

Pawel Bartoszek
Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónvarpi. Sum, til d...

Skoðun

Raunhæfa planið

Raunhæfa planið

Ólafur Þ. Stephensen
Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun til nokkurra v...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Viðskipti innlent / Mikil gróska í bjórframleiðslu á Íslandi