Leikjavísir

Mikil aukning í tekjum vegna snjalltækjaleikja

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Leikir sem gerðir eru fyrir snjalltæki munu skila meiri tekjum en leikir sem gerðir eru fyrir leikjatölvur á næsta ári. Markaðsrannsóknafyrirtækið Newzoo telur að tekjur snjalltækjaleikja verði 25 milljarðar dala, eða um þrjú þúsund milljarðar króna, á þessu ári.

Það yrði aukning um 42 prósent frá síðasta ári.

Samkvæmt nýrri rannsókn Newzoo mun sókn snjalltækjaleikja koma niður á vexti leikja sem framleiddir eru fyrir leikjatölvur eins og Playstation og Xbox. Þá segja þeir að markaður slíkra leikja verði sá stærsti í leikjaheiminum.

Hér má sjá spá Newzoo um tekjur á snjalltækjaleikjamarkaði.Mynd/Newzoo
Á vef Guardian segir þó að spá Newzoo stangist á við aðrar. Meðal annars segir SuperData að leikir fyrir leikjatölvur muni skila 55 milljarða dala tekjum á næsta ári. Miðað við þær tölur eru 25,8 milljarðar ekki nóg til að komast í efsta sætið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×