Golf

Mikið um að vera í golfheiminum um helgina

Kári Örn Hinriksson skrifar
McIlroy mætir til leiks á ný.
McIlroy mætir til leiks á ný. AP
Það er mikið að gerast í golfheiminum um helgina en tvö stór mót eru á dagskrá, sitt hvoru megin í heiminum.

PGA-mótaröðin er enn á Hawaii þar sem Sony Open fer fram en mótið markar upphaf keppnistímabilsins fyrir nokkur stór nöfn á mótaröðinni, meðal annars Webb Simpson, Carl Petterson og Luke Donald.

Þrátt fyrir það verða augu flestra eflaust í Abu Dhabi þar sem HSBC World Championship fer fram en það er eitt af stærstu mótum ársins á Evrópumótaröðinni. Þar mun Rory McIlroy, besti kylfingur heims, hefja keppnistímabilið sitt ásamt mörgum öðrum stjörnum, meðal annars Rickie Fowler,Justin Rose, Martin Kaymer og Henrik Stenson.

Það ætti því að vera nóg að gera fyrir golfáhugamenn um helgina en bæði mótin verða í beinni útsendingu á Golfstöðinni. Alla útsendingatíma má nálgast hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×