Erlent

Mikið óveður í Ástralíu

Vísir/AFP
Íbúar Suður-Ástralíu hafa nú í tvo daga tekist á við eitt mesta óveður þar í ríki í manna minnum, eða í hálfa öld hið minnsta. Um áttahundruðþúsund eldingum sló þar niður á einum sólarhring og var allt fylkið rafmagnslaust yfir heila nótt og varir það ástand víða enn.

Þá féllu að minnsta kosti tuttugu útvarps- og símsendingaturnar í gríðarlegu roki sem lítið lát virðist á.  Flóðaviðvaranir er í gildi víða, þar á meðal í höfuðborginni Adeleide.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×