Enski boltinn

Mikið grín gert að Gerrard á twitter

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Steven Gerrard.
Steven Gerrard. Vísir/Getty
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, átti dapran dag þegar Liverpool-liðið datt út úr enska bikarnum í gær. Hann fékk líka að heyra það á samfélagsmiðlunum.

Steven Gerrard átti möguleika á því að spila bikarúrslitaleikinn á afmælisdegi sínum en eftir 2-1 sigur Aston Villa á Wembley í gær er ljós að síðasti leikur Steven Gerrard með Liverpool verður í ensku úrvalsdeildinni.

Brendan Rodgers setti Steven Gerrard í byrjunarliðið en það hafði ekki góð áhrif á liðið.

Steven Gerrard fékk harða meðferð á twitter í kjölfar leiksins í gær enda var hann algjör farþegi á miðju Liverpool í leiknum.

 

Líkt og í fyrra þegar menn héldu að það væri skrifað í skýin að hann yrði loksins Englandsmeistari þá breyttist þessi draumaendir í ár líka í martröð.

Hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi um það hvernig menn voru að gera grín að Gerrard á twitter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×