Mikið barnalán hjá íslenskum landsliðskonum í handbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. september 2017 08:30 Sunna Jónsdóttir, númer 26, í varnarvegg í landsleik. Vísir/Ernir
Handknattleikskonan Sunna Jónsdóttir mun ekkert spila með sænska liðinu Skara HF á þessari leiktíð þar sem hún ber barn undir belti. Íslenska landsliðið mun því heldur ekki njóta starfskrafta hennar en Sunna hefur verið fastamaður í landsliðinu síðustu ár. Morgunblaðið segir frá því að Sunna sé ófrísk og að hún eigi von á sér um miðjan marsmánuð. Sunna skipti yfir í Skara HF í júní en hafði þar á undan spilað í tvö tímabil hjá Heid frá Gautaborg. Hún átti að vera síðasta púslið í liðið samkvæmt þjálfaranum Andreas Johansson en það verður hinsvegar bið á því að hún spili. Sunna Jónsdóttir hefur spilað 56 leiki fyrir íslenska landsliðið til þessa. Það er mikið barnalán hjá landsliðskonum í handbolta þessa dagana því tvær aðrar landsliðskonur eru líka ófrískar. Það eru þær Steinunn Björnsdóttir og Rut Jónsdóttir. Þær ætla sér hinsvegar allar að koma öflugar til baka og svo á einnig við um Sunnu. „Ég stefni á að gera eins og margar frábærar handboltakonur sem hafa komið sterkari til baka eftir barnsburð,“ sagði Sunna við Morgunblaðið.
Handbolti Mest lesið Hristir hausinn yfir glórulausum og smásálarlegum ummælum Körfubolti Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti Fleiri fréttir „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Sjá meira