Innlent

Mikið álag á Landspítala vegna óvenju mikils fjölda sjúklinga

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Inngangur bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi.
Inngangur bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. vísir/ernir
Mikið álag er nú á Landspítala en fjöldi sjúklinga sem leitað hefur til Landspítala síðustu daga er óvenju mikill og hefur nú meðal annars greinst inflúensa.

Á bráðamóttöku Landspítala er sjúklingum forgangsraðað eftir alvarleika og við þær aðstæður sem nú eru á spítalanum má gera ráð fyrir að þeir sem ekki eru í bráðri þörf þurfi að bíða þjónustu eða verði vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavaktina eftir að ástand þeirra hefur verið metið.

Bendir spítalinn á að flestar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu bjóða opna síðdegismóttöku og Læknavaktin á Smáratorgi er opin til kl. 23. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×