Bíó og sjónvarp

Mike Myers á leiðinni á hvíta tjaldið

Birgir Olgeirsson skrifar
Mike Myers.
Mike Myers. Vísir/EPA
Kanadíski grínistinn Mike Myers hyggur á endurkomu á hvíta tjaldið en hann mun leika í spennutryllinum Terminal. Í myndinni fara Max Irons og Dexter Fletcher með hlutverk tveggja launmorðingja sem taka að sér afar hættulegt verkefni fyrir mjög svo vafasaman vinnuveitanda sem lofar þeim ríkulegri greiðslu.

The Hollywood Reporter segir þá síðar hitta kröftuga konu, leikna af Margot Robbie, sem mun hafa þó nokkur áhrif á þá. Breski leikarinn Simon Pegg mun einnig leika í myndinni en ekki er vitað hvert hlutverk Mike Myers verður.

Síðast sást hann holdi klæddur á hvíta tjaldinu í kvikmynd Quentins Tarantino, Inglourious Basterds, árið 2009. Hann er hvað þekktastur fyrir hlutverk á borð við Austin Powers, úr samnefndum myndum um galgopalegan njósnara, Wayne Campell úr Wayne´s World-myndunum og þá ljáði hann einnig tröllinu Shrek rödd sína í samnefndum teiknimyndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×