Bíó og sjónvarp

Mike Leigh til Íslands

LIlja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mike fær heiðursverðlaun RIFF í ár.
Mike fær heiðursverðlaun RIFF í ár. vísir/getty
„Okkur finnst auðvitað gaman að sýna fullt af myndum nokkrum sinnum á ári en það er enn fremur gefandi að gera eitthvað meira. Veita fólki ákveðna innsýn í hvernig kvikmyndaleikstjórar vinna. Kafa dýpra,“ segir Atli Bollason, meðframleiðandi Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, RIFF, og bíófíkill.

Hinn virti, breski leikstjóri Mike Leigh verður heiðursgestur á RIFF í ár en hátíðin hefst þann 25. september. Nýjasta mynd hans, Mr. Turner, verður sýnd á hátíðinni auk tveggja eldri mynda, Topsy-Turvy frá árinu 1999 og Life is Sweet frá árinu 1990. Leikkonan Marion Bailey, sem leikur í Mr. Turner, kemur með honum til landsins og stefna þau á að skoða land og þjóð áður en þau halda af landi brott.

Aðspurður hvort koma hans til landsins hafi einhverja þýðingu stendur ekki á svörunum hjá Atla.

„Ég held að það hafi það alltaf,“ segir hann en meðal fyrri heiðursgesta RIFF eru Lukas Moodyson, Milos Forman og Jim Jarmusch.

„Mike Leigh er náttúrulega einn af fremstu evrópsku leikstjórum síðustu 25 ára. Hann er einnig Íslendingum að góðu kunnur því Secrets & Lies var risasmellur hér. Hann hefur aldrei misst dampinn og ég held að það sé að hluta til út af því að hann er svo mannlegur,“ bætir Atli við.

Mike verða afhent heiðursverðlaun RIFF fyrir æviframlag sitt til kvikmyndalistarinnar á Bessastöðum þann 1. október. Eins og fyrri ár er það forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem afhendir þau. Sama dag talar Mike á sérstökum masterklassa í hátíðarsal Háskóla Íslands.

Atli hlakkar til að hitta Mike Leigh.vísir/valli
„Hann vinnur með þeim hætti að oft er ekki til handrit til að byrja með. Hann vinnur með leikurum til að búa til eftirminnilega karaktera og það er spunnið og spunnið. Það er svo kannski ekki fyrr en rétt fyrir tökur að atburðarásin er smíðuð. Þetta er óvenjulegt vinnuferli en afraksturinn sýnir að hún það alveg jafn gilt og annað, ef ekki betra,“ segir Atli um vinnuaðferðir leikstjórans og hvetur alla til að grípa tækifærið og fá að kynnast kappanum enn betur í masterklassanum. Þá verður Mike einnig viðstaddur spurt og svarað-sýningu kvöldið 30. september á nýjustu mynd sinni, Mr. Turner, sem sýnd verður í Háskólabíói á hátíðinni. Myndin sú var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor en ásamt því að vera tilnefnd til Gullpálmans vann aðalleikari myndarinnar, Timothy Spall, leikaraverðlaunin á hátíðinni.

Atli hlakkar mikið til að hitta meistarann.

„Ég er strax byrjaður að hugsa um hvaða umræðuefni ég get bryddað upp á. Ég vil auðvitað koma vel fyrir,“ segir hann og hlær. En hver er hans uppáhaldsmynd eftir kappann?

„Ég held að það sé Secrets & Lies. Hún var sú fyrsta sem ég sá og fyrsta myndin situr alltaf í manni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×