Fótbolti

Mignolet fékk á sig skrautlegt mark í sigri Liverpool | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Christian Benteke skoraði sigurmarkið.
Christian Benteke skoraði sigurmarkið. vísir/getty

Furðulegt mark sem Simon Mignolet átti allan heiðurinn af kostaði Liverpool ekki sigurinn í kvöld þegar liðið tók á móti Bordeaux frá Frakklandi í fimmtu leikviku Evrópudeildarinnar.

Belginn tók boltann upp í teignum og hélt honum í 22 sekúndur. Dómari leiksins flautaði þá loksins óbeina aukaspyrnu og úr henni skoraði Henri Saivet með fallegu skori á 33. mínútu, 1-0.

Liverpool jafnaði metin aðeins fimm mínútum síðar með marki James Milner úr vítaspyrnu, 1-1, og áður en hálfleikurinn var allur komst Liverpool yfir.

Belginn stóri Christian Benteke tryggði Liverpool sigurinn með flottu marki á 45. mínútu, 2-1, og þar við sat.

Sigurinn fleytti Liverpool í 32 liða úrslit Evrópudeildarinnar, en liðið er á toppnum í B-riðli með níu stig, fjórum stigum meira en Rubin Kazan sem er í þriðja sætinu.

Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.

Bordeaux kemst 1-0 yfir með marki úr óbeinni aukaspyrnu: James Milner jafnar úr vítaspyrnu: Christian Benteke kemur Liverpool yfir:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×