Enski boltinn

Jóhann Berg og félagar með dramatískan sigur á Everton | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjölmargir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og ber þar helst að nefna dramatískan sigur Jóhanns Berg og félaga í Burnley á Everton, 2-1.

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley og lék hann allan leikinn fyrir heimamenn.

Sam Vokes kom heimamönnum yfir á 39. mínutu en Yannick Bolasie jafnaði fyrir Everton þegar hálftími var eftir af leiknum.

Það var síðan Scott Arfield sem skoraði sigurmarkið á 90. mínútu leiksins og náðu nýliðarnir í þrjú frábær stig. Arfield skoraði eftir að Jóhann Berg hafði þrumað boltanum í þverslána og hann hirti frákastið. 

Stoke City vann Hull 2-0 á útivelli en Stoke hefur gengið illa á tímabilinu. West Ham vann Sunderland, 1-0, en Winston Reid skoraði sigurmark West Ham á lokamínútu leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×