Fótbolti

Matraðarkvöld fyrir Besiktas í kuldanum í Kænugarði | Úrslitin í Meistaradeildinni | Sjáðu mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þetta var skelfilegt kvöld fyrir Besiktas í Kænugarði.
Þetta var skelfilegt kvöld fyrir Besiktas í Kænugarði. Vísir/Getty
Benfica og Napoli tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld á kostnað Besiktas og úrslitin féllu með Arsenal-mönnum sem vinna sinn riðil.

Tyrkneska liðið Besiktas þurfti bara að treysta á sjálfan sig í lokaumferð B-riðilsins en B-riðilinn var eini riðill kvöldsins þar sem var ekki ljóst hvaða lið kæmust áfram.

Besiktas nægði að vinna sinn leik á móti Dynamo Kiev í Kænugarði en örlög Tyrkjanna voru grimm í kvöld. Besiktas hrundi á skelfilegum fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik þegar þeir fengu á sig tvö mörk og misstu leikmann af velli.



Dynamo Kiev skoraði fyrsta mark leiksins á níundu mínútu og bætti síðan tveimur mörkum við á tveimur mínútum eftir að Andreas Beck fékk að líta rauða spjaldið.

Úkraínumennirnir skoruðu alls sex mörk í leiknum og Tyrkirnir enduðu níu inn á vellinum eftir að Vincent Aboubakar fékk sitt annað gula spjald fyrir að sparka boltanum upp í stúku.

Napoli vann 2-1 útisigur á Benfica á sama tíma og vann riðilinn en Portúgalarnir gátu fagnað sæti í sextán liða úrslitunum þrátt fyrir tapið.



Arsenal vann 4-1 útisigur á Basel þar sem Lucas Perez skoraði þrjú fyrstu mörkin. Sigurinn skilaði Arsenal toppsæti riðilsins þar sem Paris Saint Germain náði aðeins 2-2 jafntefli á heimavelli á móti Ludogorets á sama tíma.  

Arda Turan skoraði þrennu fyrir Barcelona í 4-0 heimasigri á Borussia Monchengladbach. Lionel Messi þurfti tvö mörk til að jafna markamet Cristiano Ronaldo (11 mörk 2015-16) í einni riðlakeppni en náði bara að skora eitt þrátt fyrir nokkur góð færi. Leikurinn skipti engu því Barcelona var búið að vinna riðilinn.

Robert Lewandowski tryggði Bayern München 1-0 sigur á Atletico Madrid með marki beint úr aukaspyrnu en það breytti því þó ekki að Atletico Madrid vann riðilinn og Bayern endaði í öðru sæti.



PSV Eindhoven gerði bara jafntefli á heimavelli á móti FC Rostov og náði ekki þriðja sætinu sem gefur sæti í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar.

Úrslit og markaskorarar í Meistaradeildinni í kvöld:

A-riðill

Basel - Arsenal 1-4

0-1 Lucas Perez (8.), 0-2 Lucas Perez (16.), 0-3 Lucas Pérez (47.), 0-4 Alex Iwobi (53.), 1-4 Seydou Doumbia (78.).

Paris Saint Germain - Ludogorets 2-2

0-1 Virgil Misidjan (15.), 1-1 Edinson Cavani (61.), 1-2 Wanderson (69.), 2-2 Ángel Di María (90.+2)

B-riðill

Dynamo Kiev - Besiktas 6-0

1-0 Artem Byesyedin (9.), 2-0 Andriy Yarmolenko, víti (31.), 3-0 Vitaliy Buialsky (33.), 4-0 Derlis González (45.+2), 5-0 Serhiy Sydorchuk (60.), 6-0 Júnior Moraes (78.).

Benfica - Napoli 1-2

0-1 José Callejón (60.), 0-2 Dries Mertens (79.), 1-2 Raúl Jiménez (88.)

C-riðill

Barcelona - Borussia Monchengladbach 4-0

1-0 Lionel Messi (16.), 2-0 Arda Turan (50.), 3-0 Arda Turan (53.), 4-0 Arda Turan (67.)

Manchester City - Celtic 1-1

0-1 Patrick Roberts (4.), 1-1 Kelechi Iheanacho (8.)

D-riðill

Bayern München - Atletico Madrid 1-0

1-0 Robert Lewandowski (28.)

PSV Eindhoven - FC Rostov 0-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×