Innlent

Miðlunartillaga lögð fram og verkfalli ljósmæðra aflýst

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í deilu ljósmæðra og ríkisins. Myndin er frá fundi fyrr í vikunni.
Ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í deilu ljósmæðra og ríkisins. Myndin er frá fundi fyrr í vikunni. Vísir/Einar
Ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í deilu Ljóðsmæðrafélags Íslands og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Samhliða framlagningu tillögunnar samþykkir Ljósmæðrafélag Íslands að aflýsa yfirstandandi yfirvinnubanni. Tillagan felur í grundvallaratriðum í sér sambærilegar hækkanir og samningur aðila frá 29. maí síðastliðnum og gildistími tillögunnar er til 31. mars 2019.

Tilkynning um þetta var send á fjölmiðla rétt fyrir klukkan átta í kvöld.

Djúpstæður ágreiningur hefur verið í milli samningsaðila um það hvort að launasetning stéttarinnar sé í samræmi við menntun, álag og inntak starfs ljósmæðra. Þessi ágreiningur hefur meðal annars staðið í vegi fyrir því að aðilar skrifi undir kjarasamning. Tillagan felur í sér að sérstökum gerðardómi verði falið að skera úr um það hvort og að hvaða leyti þessir þættir eigi að hafa frekari áhrif á launasetningu stéttarinnar. Kjaradeilunni var vísað til ríkissáttasemjara þann 5. febrúar 2018. Kjarasamningurinn hafði verið laus síðan 1. september 2017.

Tillagan verður kynnt félagsmönnum og fjármála- og efnahagsráðherra á næstu dögum og greiða samningsaðilar atkvæði um hana fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 25.júlí 2018. Miðlunartillagan verður ekki birt öðrum en hluthafandi aðilum fyrr en atkvæði hafa verið greidd um hana.


Tengdar fréttir

Deildir sameinaðar og ómskoðunum fækkað

Deildir hafa verið sameinaðar og ómskoðunum mun fækka á Landspítalanum til að bregðast við þeim hnút sem kjaradeila ljósmæðra og ríkisins er komin í. Ljósmóðir sem sagt hefur upp störfum á fósturgreiningardeild Landspítalans segir fyrstu ómskoðun mikilvæga fyrir foreldra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×